Færsluflokkur: Trúmál og siðferði

Hve lengi fær Bónusgrísinn grið? Ó þú fagra fjölmenning.

bonusgris

 Mér svelgdist á morgunkaffinu kl. 07:00 í morgun, þegar RÚV flutti þær fréttir að hollenski bankinn Fortis hefði látið undan þrýstingi og hætt að dreifa sparigrísum.  Samtímis ákváðu tveir bankar í Bretlandi að innkalla alla sparigrísi bankana, sem múslímar líta á sem móðgun við sig þar sem grísir eru óhrein dýr. Hið opinbera let ekki sitt eftir liggja og bannaði leikskólakennurum að segja börnum söguna um úlfinn og grísina 3, nú skyldu leikskólakennarar og starfsfólk gæslu- og leikskóla kenna sömu sögu með þeirri breytingu að í stað grísanna komu 3 kettlingar.129_khomeini2


Prestur hvetur söfnuðinn til aukins kynlífs!

Séra Paul Wirth safnaðarleiðtogi Relevant kirkjunnar á Florida hefur gefið út almenna áskorun til giftra sóknarbarna sinna um að auka kynlíf sitt verulega.  Hann segir að í starfi sínu hafi hann orðið þess áskynja að mikið kynlíf bætti ekki bara samskipti hjóna heldur líðan alls heimilisfólks.  Síðast en ekki síst væri gott kynlíf Guðs gjöf í hverju hjónabandi og áhrifaríkasta leiðin til að draga úr hjónaskilnuðum.  Aðspurður hve of hjón ættu að gera það taldi hann að einu sinni á sólarhring væri lámark fyrsta mánuðinn.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband