Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
Þóknanlegir fá skömturnarseðla á sérkjörum
Þriðjudagur, 20. nóvember 2012
Þóknanlegir aflandskrónueigendur reyna nú að koma sér í mjúkinn hjá Seðlabankanum.
Drottinn gefur og Drottinn tekur.
Áttunda gjaldeyrisútboð Seðlabankans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vilja endurheimta fiskimiðin
Sunnudagur, 18. nóvember 2012
Meirihluti Breta vill úr ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Jón Bjarnason kallar á kirkjuna
Þriðjudagur, 13. nóvember 2012
Æ fleiri "kalla á Ásatrúarfélagið". (Er ekki eitthvað bogið við þetta orðalag) Ég hitti Hilmar Örn um daginn og sagði hann mér að félagsmenn væru eitthvað á yfir tvö þúsund. Eru þá restin af þjóðinni að "sækja að félaginu"? Erum við sem ekki erum í þjóðkirkjunni að "sækja að henni". Nei, en reglur heimila ekki að maður sé skráður í fleiri en eitt trúfélag. Sjálfur fer ég oft í kirkju og hef sem betur fer aldrei fundið mig óvelkominn. Er ekki eðlilegra að ákalla guði en stofnun?
Við köllum á kirkjuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Neytendastofa hefnir sín.
Þriðjudagur, 6. nóvember 2012
Einhver stærstu mistök sem ég hef gert í lífinu voru þau að leita til Neytendastofu, sem úrskurðaði degi áður en frestur sem áfrýjunarnefnd neytendamála gaf stofnuninni til að svara kæru vegna óhæfilegs dráttar á málinu. Áður hafði undirritaður spurt innanríkisráðuneytið hvernig stæði á því að lögmaður Eggerts Kristjánssonar hf hefði fengið að gefa upplogna skýrslu fyrir Neytendastofu án þess að það lögbrot hefði verið kært til lögreglu. Af þessu tilefni spurði ég innanríkisráðuneytið skriflega um hver afstaða þess væri til slíkra lögbrota. Ráðuneytið svaraði undirrituðum skriflega og viðurkenndi að lögbrot hefði verið framið. Það er borgaraleg skylda mín að var við þessari stofnun.
Ég fagna því að úrskurður sé nú kominn því þá er hægt að skjóta málinu til dómstóla.
Engin hætta á ruglingi á umbúðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Líkist þessi maður Loka Laueyjarsyni sem stal Mjölni?
Mánudagur, 15. október 2012
Dæmi nú hver fyrir sig en Loki lagði sig og ætt sína alla (jötna) í gríðarlega mikla hættu þegar hann stal hamri Þórs til þess eins að fá að kvænast hinni eftirsóttu og náttúrumiklu Freyju dóttur Njarðar. Þetta var hið mesta hættuspil enda var "ætt jötna öll lamin" eins og segir í kvæðinu.
Loki á Kaffi Loka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Falleg athöfn í Fríkirjunni
Sunnudagur, 14. október 2012
Rasmusar minnst við tjörnina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Húrra fyrir verkalýðsfélagi Akranes
Fimmtudagur, 11. október 2012
Verkalýsfélag Akranes stóð fyrir könnun sem sýndi að yfirgnævandi meirihluti félaga ASÍ vildi að forseti sambandsins yrði kjörinn í allsherjaratkvæðagreiðslu. Sjá Hér
En miðstjórnin sló skjaldborg um Gylfa enda eru menn með reynslu af stjórnarsetu í Tortólafélagi ekki á hverju strái.
Hafnaði tillögu um allsherjaratkvæðagreiðslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vonandi ganga fleiri úr skaptinu
Fimmtudagur, 29. mars 2012
Styður frumvarpið ekki óbreytt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Verslaði Sigujón í Bónus?
Þriðjudagur, 20. mars 2012
Björn Bjarnason er að vonum sár út í Baugsmenn sem lögðu Guðlaugi Þórðarsyni til fjármuni til að fella hann í prófkjöri. Þeir ráku fjölmiðla og lögðu fjármuni til stjórnmálastarfsemi. Vasar margra samfylkingar- og sjálfstæðismanna voru úttroðnir af peningum frá þessum aðilum og eru kannski enn.
Sigurjón Þórðarson bróðir minn hefur aldrei þegið eyri, hvað þá heldur kaffibolla frá þessu fyrirtæki eða neinum tengdum því.
Einu tengsl Sigurjóns Þórðarsonar alþingismanns við Baugsveldið eru þau að honum hafði orðið á að versla eittvað smáræði í Bónus en það heyrði til algerrar undantekningar því góðu heilli var erfitt að falla í slíka freistni þar sem Baugsveldið náði ekki að teygja arma sína til Sauðárkróks. Ég er til vitnis um að bróðir minn beinir því viðskiptum sínum til Hlíðarkjörs og Kaupfélags Skagfirðinga.
BB þekkir sitt heimafólk og gerir því eðlilega strangari siðferðiskröfur til annarra.
Segir Sigurjón hafa stutt klíkuskap | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tapsárir hælbítar forsetans
Sunnudagur, 10. apríl 2011
Forsetinn ruglar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |