Fróðleg færsla um tengsl Össurar og Árna Matt

Upplýsandi grein eftir Jón Kristjánsson fiskifræðing um þá kumpána úr hrunastjórninni Össur og Árna Matt

Fagurt galaði fuglinn sá

Jens Stoltenberg stríkur Jóhönnu með hárunum.
mbl.is Segir Ísland á réttri leið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Græðgi Evrópusambandsins

Það er alveg merkilegt að Evrópusambandið skuli ætlast til að Íslendingar fóðri makrílinn a seiðum í íslenskri lögsögu ókeypis.  Ef Evrópusambandið þykist eiga makrílinn ættu það að koma í veg fyrir lausagöngu makrílsins hér.
mbl.is Buðu 3,1% af makrílkvóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef herra Karl væri ásatrúar?

Íslendingar hafa í raun aldrei verið kristnaðir, flest eldra fólk trúir á góðar vættir, jafnvel álfa og er forlagatrúar. Siðferðisgildi flestra byggja
að mestu  á heiðnum gildum s.s. drenglyndi, heiðarleik og virðingu fyrir
náttúrunni. Ætli herra Karl yrði verri maður ef hann væri ásatrúar?
mbl.is Vegið að rótum trúarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf að hefta fjölmiðla?

Nýju fjölmiðlafrumvarpi er ætlað að setja bönd á fjölmiðla og koma m.a. í veg fyrir allan hatursáróður.

Það setur að mér ugg. 

Þurfa stjórnvöld að hefta fjölmiðla?


mbl.is Mælt fyrir fjölmiðlafrumvarpi á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnmálastéttin reynir að ná samstöðu um að viðhalda sér.

 Fólki er gróflega misboðið.

 En hvað er til ráða, nýr trúður, utanþingsstjórn eða þjóðstjórn?

Það er erfitt að hugsa sér að nokkur trúður yrði í raun verri en það er samt heldur ekki gefið að hann yrði betri.  Sama má segja um utanþingsstjórn hún yrði fíaskó því hún yrði alltaf háð þinginu. Þjóðstjórnarhugmyndina er hægt að afgreiða með gömlu orðtaki sem segir að því verr gefist heimskra manna ráð eftir því sem fleiri koma saman.

Er ekki kominn tími til að bændur og aðrir bústólpar úr öllum fjórðungum haldi þjóðfund á Þingvöllum og skipi í Lögréttu?  Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði er vís með að vera okkur innan handar.


mbl.is Fólki er misboðið og bíður eftir einhverju réttlæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Háttvirtur er öfugmæli

Því verður vart trúað að þingforseti krefjist þess að menn séu ávarpaðir með öfugmælakveðjum.
mbl.is Hætt að segja háttvirtur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðismenn ekki sakhæfir?

Sjálfstæðismenn á þingi þykjast vera yfir sig hneykslaðir vegna þess að margir þingmenn vilja fara eftir stjórnarskránni sem sjálfstæðismenn voru fyrir nokkrum dögum að átta sig á að væri úrelt, í það minnsta öll ákvæði sem leitt gætu til sakfellingar nokkurs úr þeirra röðum.

Ofstækið er slíkt að þeir segja að öll endurreisn sé útilokuð verði stjórnarskránni framfylgt. Landsdómi er líkt við  pólitískar galdraofsóknir þó  11 af 16 dómurum þar hafi verið valdir fyrir það að vera sjálfstæðismenn. 


mbl.is Ískalt viðmót á þinginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirfram ákveðið leikrit

Það liggur ljóst fyrir að Sjálfstæðisflokkur og Samfylking hafa náð saman um að leyfa ekki ákærur  á hendur ráðherrum þessara flokka. Samfylkingin mun reyna að láta líta út fyrir að þar greiði menn atkvæði óháð flokksaga og því er stefnt að því að tillagan verði felld á jöfnu.

Ég segi sveiattan!


mbl.is Atkvæði um málshöfðun í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óttinn við kosningar

Það er augljóst að óttinn við kosningar fældi Samfylkinguna frá að taka freistandi tilboði Sjálfstæðisflokksins um bandalag þessara flokka um lögleysi og spillingu, með því að sniðganga ákvæði stjórnarskrárinnar um Landsdóm.

Það er hægt að draga hest að brunni en verður hægt að þvinga hann til að drekka?


mbl.is Kosið um hvern og einn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband