Væntanlegur formaður Samfylkingarinnar. forgangsraðar.

folk_steingrimur_j_sigfussonSteingrímur J. Sigfússon er klókur valdastjórnmálamaður. Hann sér í hendi sinni að Jóhanna er orðin öldruð og lúin og áttar sig ekki til fullnustu á flóknum verkefnum. Enginn kandídat er augljós valkostur og Samfylkingin því í raun höfuðlaus her. Þessu áttar Steingrímur sig vel á og spilar þessa skák óaðfinnanlega. Hann hefur nálgast Samfylkinguna í stóriðjumálum, Evrópumálum, Æsseif og kemur í hverju málinu á fætur öðru fram sem talsmaður ríkistjórnarinnar og Samfylkingarinnar.

Steingrímur veit hvað hann þarf að gera til að ná markmiði sínu: Hann verður að vinna að Evrópusambandsaðild og samþykkja Æsseif.  Með þessu er hagsmunum komandi kynslóða fórnað og þær hnepptar í skuldafjötra en verkefnum skal forgangsraða. 


mbl.is Vill ekki stríð við aðrar þjóðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samviskulaus barnanauðgari náðist

Það var frábært framtak hjá þýsku lögreglunni að svæla barnaníðinginn  "Christof" úr greninu með því að birta af honum myndir og raddsýni þannig að  hann sá sér ekki annað fært en að gefa sig fram. Þetta þqxyzw  beitti kornunga drengi skefjalausu ofbeldi, sem er miklu þyngra en tárum taki.   Ég vona að yfirvöld hér heima og erlendis læri af þessu og sleppi ekki aftur svona  þqxyzw út á götu "af mannúðarástæðum".

 Ath!  Meðfylgjandi myndband er ekki af Christof enda eru þau ekki birtingarhæf.


mbl.is Barnaníðingur gaf sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjómenn þvingaðir til að henda makríl í stórum stíl

Fréttir berast nú af því af miðunum að sjómenn séu þvingaðir til að henda makríl í stórum stíl því Fishing%20herring makríllinn má ekki vera nema 10% aflans.  Þar sem makríllin og síldin eru saman er útilokað að sortera tegundirnar og ekki er betra að sleppa síldinni því hún er öll dauð eftir að búið er að herpa nótina. Þetta er gert til að þóknast Evrópusambandinu, sennilega af því að Ísland er skuldugt og búið að skila inn umsókn.  Væri ekki nær að veiða makrílinn og nota peningana til að borga skuldirnar?
mbl.is Síldveiðiskip umkringd makríl um alla lögsögu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einar Þveræingur endurborinn


mbl.is Styðja Icesave með fyrirvara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vatnasl - Glansinn af ESB aðild orðinn mattur.

Eftir því sem frekari upplýsingar koma fram eyðist gljáinn af ESB. Í nýrri rannsókn Gallup kemur fram að  58,3% frekar eða mjög andvíg inngöngu Íslands í Evrópusambandið, en 41,7% frekar eða mjög hlynnt.

Sögulega séð hefur Íslandi gengið best þegar það hefur haft forræði í eigin málum en ef Ísland yrði aðili að ESB yrði staða þess fyrirsjáanlega mun verri.

Sérstaða Íslands felst í því að Ísland býr við miklar náttúruauðlindir, einhæft atvinnulíf og er mjög háð utanríkisviðskiptum. Helsta auðlind Íslands er sjávarauðlindin.

Ef Ísland gengi í ESB myndi landið missa forræði yfir sjávarauðlindinni til langs tíma (s.k.v. Rómarsáttmálanum) þó við gætum fengið tímabundnar undanþágur eins og Malta, sem Össur hefur oft vitnað til en fiskveiðar þess ríkis eru á við íslenskan vertíðarbát. Ef við gengum í bandalagið yrðum við tafarlaust og undantekningalaust að gangast undir allar tollareglur bandalagsins sem eru alls ekki hannaðar fyrir ríki sem flytja út fisk, heldur þvert á móti.  Þannig myndum við skrúfa fyrir útflutning okkar á fiski til Asíu og víðar, þar sem markaðirnir eru að vaxa hvað mest.  Í Kína og Kóreu var um 40- 60% tollur á fiski en Ísland hefur beint og í gegnum EFTA fengið miklar lækkanir og við vorum langt komin með fríverslunarsamning við þessi ríki en það hefur illu heilli verið sett á ís.  Gagnvart Kína þyrftum við að lækka tolla á skóm og skyrtubolum um 15% sem ætti ekki að skaða okkur en ESB myndi aldrei fallast á.

 


mbl.is Fleiri andvígir aðild að ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ástir górillu og manns Varúð ! Ekki fyrir viðkvæma.

Það er þekkt úr dýraríkinu að spendýr sem öll eru talsvert skyld, eiga það til að flökta á milli tegunda í viðleitni sinni til að fjölga sér. Ekki má líta af hestum og ösnum nú eða köttum og tófum.  Maðurinn er engin undantekning á þessu flippi spendýranna, hann er skyldastur öpum og HIV sýking kemur aðallega úr simpönsum en nú einnig úr górillum. Sama má segja um sárasóttina (sýfilis) sem kom til Evrópu úr lamadýrum  í S-Ameríku sem siðmenntaðir kristnir Spánverjar lögðu undir sig.

Á stríðsárunum voru tveir amerískir úrvalshermenn staðnir að því að hafa samræði við kvígu og var þessi vísa þá ort:  

Ef að þetta úrvalslið// iðkar kálfasmíði//Hverju ætli úrkastið//í Ameríkunni ríði?


mbl.is Greindist með nýtt afbrigði HIV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna og Eva Joly í hár saman!

Nú hefur Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra Samfylkingarinnar sigað aðstoðarmanni sínum á vinsælustu c_bloggmyndir_einn_a_munninnkonu á Íslandi Evu Joly. Jóhanna lætur aðstoðarmann sinn senda henni tóninn með þessum orðum:: "Dettur Evu í hug að þessi grein auki traust á Íslandi erlendis ? "  Síðan fylgir þessi hótun: "Held hún ætti að halda sig við ráðgjöf við sérstaka saksóknarann og láta aðra um efnahagsmálin.“

Fjölmargir samfylkingarmenn líta ekki á sig endilega sem Íslendinga heldur Evrópumenn og því eru sumir þeirra undrandi og jafnvel sárir Evu fyrir að taka eindregið málstað Íslendinga og gagnrýna um leið Evrópusambandið..  

Ráðherrar  hafa enga burði til að kljást við Evu Joly en senda aðstoðarmann á foraðið.

 


mbl.is Hrannar sendir Joly tóninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamla og Nýja Kaupþing sammála um að leyna ósómanum

Top-SecretÞað gengur ekki hnífurinn á milli Gamla og Nýja Kaupþings í ákefðinni að koma í veg fyrir umfjöllun um vinnubrögð Gamla Kaupþings. Það er hvorki sanngjarnt né rétt að  bankinn  beiti fyrir sig bankaleynd því upplýsingar úr lánabókum eru komnar fram. Það er umfjöllunin og hugsanleg krufning upplýsinganna sem bankanum er illa við.

 Það má víst enginn sjá sporin.


mbl.is Kaupþing fékk lögbann á RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eva Joly, málsvari Íslands.

eva_jolyÍslensk stjórnvöld eru buguð. Þau tala ekki máli Íslands, þó aldrei hafi verið meiri þörf á því en einmitt nú. Þvert á móti samþykkja þau alla uppgjafaskilm´la sem að þeim eru réttir í von um að geta slegið meiri lán og ofurselja þannig framtíð komandi kynslóða ef þær kysu að búa hér á landi.

Það voru ekki hin daufgerðu íslensku stjórnvöld sem fengu Evu Joly, það var Egill Helgason og ólíkt hafast þau að. Evu Joly, hefur tekið sér það hlutverk að gerast málsvari Íslands. 

Takk elsku Eva!  Takk fyrir mig, börnin mín og þjóðina mína, allt fólkið sem mér þykir vænt um.  Takk.


mbl.is Stöndum ekki undir skuldabyrði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband