Friða mink í hænsnabúi?

Það er ekki annað hægt en að vera sammála ungum sjálfstæðismönnum á Snæfellsnesi um að rétt sé að auka aflaheimildir og að halda áfram að veiða hval til að fiskistofnarnir geti dafnað. En það ætti að taka skötusel úr kvóta því maður friðar ekki mink í hænsnabúi.  Upplitadur%20minkur%20litur%20i%20kringum%20sig


mbl.is Vilja auka aflaheimildir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

eftir að hafa séð reynsluna af nær óheftum veiðum á makríl í sumar, þá held ég að óheft sókn í Skötusel myndi leiða til minni verðmæta. betra að auka kvótanna bara nóga mikið þannig að menn halda áfram að gera út með sem hagkvæmustum hætti.

skoða síðan taka skötusel úr kvóta sem meðafla á grásleppuveiðum. 

makríllinn er síðan önnur óværa sem við þurfum að glíma við. 

Fannar frá Rifi, 9.11.2009 kl. 20:21

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Fannar þú ættir að opna makríl og telja seiðin.

Gengur ekki togararalliðút á það að mæla fjölda seiða og meta horfur þorskstofnsins út frá því.  Svo er allt í lagi að mörghundruð þúsund tonn af makríl éti 9 falda þyng sína í seiðum. 

Segðu mér í heinskilni snýst þetta um veiðar eða veðsetningar?

Sigurður Þórðarson, 9.11.2009 kl. 20:59

3 Smámynd: Fannar frá Rifi

ég er að tala um það. Makríll er óværa hjá okkur.

Þetta á alltaf að snúast um veiðar. veðsettning, hvort sem það er í fiski, á íbúðum eða öðru ætti að vera til þess að standa straum af kostnaði og lánum til þess að fjárfesta í rekstrinum. þeir sem fara fram úr sér og geta ekki staðið í skilum eiga að fá að fara á hausinn án afskipta. 

Fannar frá Rifi, 9.11.2009 kl. 21:18

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sammála, staðan væri betri ef fleiri hefðu sama skilning.

 Hafið er ein stór og flókin  lífkeðja. Þú tekur á einum stað þá eykst eða minnkar annarsstaðar. Aukin ýsuveiði = stærri sandsílastofn = fleiri kríur og feitari þorskur. 

Hvenær tekur sjávarútvegsráðherra tillit til svona samspilsþátta? Og ef menn telja nauðsynlegt að takmarka ásókn í þorsk, af hverju má ekki alveg eins fækka um nokkrar hrefnur, sel eða jafnvel skötusel?

En við skulum ekki gleyma því að þó margt sé gagnrýnivert í sjávarútvegi hér þá er það hátíð miðað við  kæfubelginn Brussel. Þá fyrst færum við úr öskunni í eldinn!

Sigurður Þórðarson, 10.11.2009 kl. 05:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband