Færsluflokkur: Ljóð

"Ég hef óbilandi trú á Framsóknarflokknum"

Segir Jón Vigfús Guðjónsson, óþekktur maður, sem býur sig fram til formanns.

Hvað getur hann annað sagt?

Jú hann hefði getað sagt að kosturinn við að vera óþekktur sé sá að hann hefur þá ekki tekið þátt í spillingunni, sem viðgengis hefur innan flokksins. 


mbl.is Jón Vigfús býður sig fram til formanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorgerður Katrín um Davíð: Starfar í þágu Sjálfstæðisflokksins

c_documents_and_settings_jens_gud_my_documents_my_pictures_eftirlystir Í forystugrein Fréttablaðsins í dag er vakin athygli á ummælum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra um Davíð Oddsson seðlabankastjóra, aðspurð um undarlega háttsemi Davíðs sagði hún:  "Ég er þess fullviss að formaður bankastjórnar seðlabankans muni á endanum velja þá leið sem er best fyrir Sjálfstæðisflokkinn" Tilvitnun líkur.  Það er með öðrum orðum skilningur varaformanns Sjálfstæðisflokksins að bankastóri Seðlabankans eigi að vinna að hagsmunum Sjálfstæðisflokksins og setja þá ofar þjóðarhag.  Davíð er sem sagt enn foringi í genginu!
mbl.is Davíð: Of mikið gert úr ummælum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hermann Ragnarssoner góð fyrirmynd ríkisstjórnarinnar

hermannHann er góð fyrirmynd hann Hermann Ragnarsson, ráðamönnum þjóðarinnar. Hvernig væri að þeir ráðamenn þjóðarinnar, sem hrintu fólki í þessi vandræði reyndu að bæta fyrir brot sitt með því að taka þátt í starfi Fjölskylduhjálparinnar?

 Hermann Ragnarsson forstjóri Flotmúrs.   Ríkisstjórnin ætti að taka hann sér til fyrirmyndar.39aRikisstjornGHHII


mbl.is Forstjóri gerist sjálfboðaliði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Traust efnahagsstjórnun?

geir

 

 


mbl.is ESB-aðild ávísun á atvinnuleysi og launalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úff! Eiginkonan farin að ræða fyrirhugaðan skilnað

Hvað gera menn, sem halda að hjónabandið sé gott, þegar þeir frétta að konan sé farin að ræða væntanlegan skilnað í saumaklúbbnum? Fjarlægðin gerir fjöllin blá. Ástin er svo merkileg, lífsreyndir menn á miðjum aldri sem hafa fyrir löngu áttað sig á að fleira gerir gagn en sætasta stelpan á ballinu, geta allt í einu orðið rjóðir í kinnum eins og skólastrákar og kysst stúlkuna sína á Þingvöllum, rétt eins og þau séu ástfangin í fyrsta sinn. Hveitibrauðsdagarnir eru æðislegir, flogið í einkaþotu á skrítna staði og allt er svo óraraunverulegt. Samt var þetta bara fjarbúð  daman var svo sjálfstæð  og uppátækjasöm. Fór t.d. til Afganistan til að kynna sér ættflokkadeilur og allt borgað með VISA rað. Svo vildi hún skrá ekki bara sig heldur stórfjölskyldu beggja í fokdýra klúbba t.d.  Öryggisráðsklúbbinn og ESB klúbbinn,  sem fer fram á að klúbbfélagar hafi óheftan aðgang að veiða gullfiska heima í stofu hjá einhverjum ættingjum sem búa hvort sem er úti á landi. Getur einhver bent á hjónabandsráðgjafa?NATO-Bukarest_1101079469 c_documents_and_settings_eythor_desktop_blog_is_geir_og_ingibjorg
mbl.is Myndi jafngilda stjórnarslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hörður Torfason, frábær baráttumaður fyrir góðan málstað.

Hörður Torfason er frábær og að mínu mati meðal bestu sogetfilena þessa lands. Mikið held ég að  við Íslendingar værum betur sett ef við skiptum út einhverjum af þessum spilltu flokkshestum niður á alþingi og fengjum menn með gott hjartalag og sól í sinni eins og Hörð Torfason til að stýra þessu blessaða landi. Þá værum við ekki með eftirlaunaósóma, kvóta, einkavinavæðingu  og samtryggingu fjármagns og flokka.

Þetta er mín 1. des ósk til Íslands


mbl.is Hörður óvenjuleg byltingarhetja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þreif skít af Austurvelli Fyrirmyndar útigangsmaður

Útigangsmaður sem gekk örna sinna á Austurvelli bætti ráð sitt og þreif eftir sig skítinn þegar hann vaknaði. Þeir sem starfa við  Austurvöll ættu að taka þennan útigangsmann sér til fyrirmyndar og fjarlægja skít og annan óþrifnað við Austurvöll.300px-Reykjavik_althing
mbl.is Gekk örna sinna í runna á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir telur sig ábyrðalausan & ómissandi

922

Sjálfstæðisflokknum hefur nú eftir 17 ára valdazzzz tekist að koma Íslandi á hausinn og er nú í óða önn að skuldsetja ófædd börn. Forsætisráðherrann Geir Haarde, sem verið hefur ráðherra í 10 ár, þar af 8 ár sem fjármálaráðherra,  telur sig í viðtali við AP alls ekki bera neina persónulega ábyrgð á því  hvernig fór. “’Ég get ekki tekið ábyrgð á framferði bankamanna."  Auðvitað er enginn að biðja hann um það. En ef hann vill ekki taka ábyrgð á einkavinavæðingunni og því að gefa bönkunum leyfi til að veðsetja þjóðina, langar mig að spyrja: Er þessi maður ekki að sækjast eftir ábyrgð þegar hann gefur kost á sér í stjórnmálum?  Björgólfur Guðmundsson axlaði ábyrgð með því að viðurkenna mistök sín en sagðist þó  alltaf hafa farið að settum reglum. Geir segir að ekki megi kjósa því hann hafi svo mikið að gera við að bjarga þjóðinni með skrifa upp á skuldir fyrir hönd hennar.  Hvernig getur maður sem telur sig ábyrgðarlausan talið sig samt svona ómissandi?

Geir Haarde telur sig ábyrgðarlausan og ómissandi


90 ára fullveldi Íslands

auglysing2Íslendingar búa að auðugustu fiskimiðum heims, sem Bretar og önnur ESB lönd hafa lengi ásælst. Sakir einfeldningsháttar hefur Samfylkingin stutt þessi ríki með því að hvetja til innlimunar Íslands í sambandið og þar með afsals auðlindanna.

Það yrði sannarlega kaldhæðni örlaganna ef gáleysi ráðherra Samfylkingarinnar ásamt óbylgjörnum kröfum ESB á hendur Íslendingum í kjölfar þeirra mistaka, verði til að brjóta andlegan  þrótt þjóðarinnar svo hún afhendi auðlindir sínar án endurgjalds, í veikri von um að Ísland geti  kysst á vöndinn og sagt sig til sveitar hjá ESB. 

Mætum öll í Salinn í Kópavogi 1. des


mbl.is Fagna fullveldinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útrásarsöngur Dabba og gæludýra hans

Þetta snilldarlega myndband um útrásarsöng Davíðs var gert af Láru Hönnu Einarsdóttur. Á morgun kemur almenningur saman á Austurvelli til að mótmæla andvaraleysi og útrásarsöng stjórnvalda sem leitt hefur þjóðina í fátækt. En ef eitthvað gott kemur út úr þessu þá er það siðvæðing stjórnmálanna. Ég þakka Láru Hönnu og skora á hana að gera annað myndband af útrásarsöng Davíð við undirsöng gæludýranna þ.m.t. norska skógarkattarins.


mbl.is Útifundur boðaður á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband