Færsluflokkur: Pepsi-deildin
Íslendingar á þunnum ís og verða að fara varlega
Fimmtudagur, 23. október 2008
baki, nú verða Íslendingar að gæta sín og Geir áttar sig á því. Nú blasir alvaran við, jafnvel
Samfylkingunni, sem getur ekki leikið sér eins mikið í
utanríkismálunum. Við
verðum að styðja stjórnvöld til allra góðra verka hvað sem okkur kann
að þykja um fyrri verk þeirra. Sjávarútvegurinn skuldar nú 400% af ársveltu sinni, vegna kvótakerfisins. Ef kostirnir eru þeir að lifa við þröngan kost eða steypa komandi kynslóðum í skuldafen ríkissjóðs þar sem meira enn fjórða hver króna fer í vexti af erlendum lánum í amk 50 ár, þá vil ég treysta Geir og vonandi flestum stjórnmálamönnum, til að taka rétta ákvörðun. Geri þeir það mun þjóðin standa með þeim.
![]() |
Við munum ekki láta kúga okkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
"Framboð Íslands út í hött"
Mánudagur, 20. október 2008
![]() |
Framboð Íslands út í hött? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þjóðstjórn strax! Hvað myndi FF gera núna?
Mánudagur, 6. október 2008
Ráðamenn eru mjög hissa og vita ekki sitt rjúkandi ráð en telja þó að ástandið, sem þeir hafa engin tök á, sé mun alvarlegra en talið hafi verið. Þegar öllu er á botninn hvolft eru þrjár leiðir út úr vandanum. 1. Auka tekjur 2. Eyða minna 3. Taka meiri lán. Ríkistjórnin hirðir ekki um að skoða neitt nema þriðju leiðina og situr föst í því fari.
Ef stjórnarandstaðan yrði kölluð til væri hægt að ræða nýjar leiðir og lausnir.
Frjálslyndir myndi byrja á að gefa krókaveiðar frjálsar og losna þannig við brottkastið hjá smábátum. Síðan myndu þeir skipta flotanum upp í flokka og losna alveg við brottkast með afnámi aflamarks á báta en vera með svæðabundna sókn. Þannig mætti auka tekjurnar um tugi og jafnvel hundruð milljarða jafnframt því sem stofninn væri byggður upp.
Þá myndu þeir skera niður ofþenslu í utanríkisþjónustunni og öryggisráðsruglið.
Guðjón Arnar, traustur aflaskipstjóri að vestan hefur af góðum hug boðist til að aðstoða ríkisstjórnina. Hún ætti að þekkjast það. Góður skipstjóri hafnar ekki neinni aðstoð, síst af öllu vaskra manna við að berja ís í ágjöf.
![]() |
Alvarlegri en talið var |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hrossalæknir rekur ríkissjóð með halla!
Miðvikudagur, 1. október 2008
Kortið sýnir stöðu hinna ýmsu ættflokka í Afganistan á þeim tíma þegar Ingibjörg kynnti sér málið en staðan hefur breyst nokkuð síðan þá.
Þá er dýralæknirinn búinn að leggja fram ramma að fjárlögum til fjögurra ára, sem sýnir að stjórnin ætlar að starfa a.m.k. eitt ár fram yfir næstu kosningar. Mörgum þykir ríkisstjórninni farast illa að þykjast sjá langt fram í tímann en forsætisráðherra sagði sem kunnugt er í mars að botninum væri náð en síðan þá hefur gengið fallið um 30%. Skilaboðin eru skýr: Heimilin skulu spara við sig og skera niður en ríkið eykur eyðsluna. Sparnaður ríkissjóðs virðist eingöngu vera til málamynda. Til dæmis er spöruð olía svo skip Landhelgisgæslunnar komist ekki á sjó en mun hærri upphæð er eytt í tveggja daga útsýnis- og eftirlitsflug franska flughersins yfir landinu. Þá þenst utanríkisþjónustan út, sem aldrei fyrr, enda eru þar mörg brýn verkefni svo sem að ISG kynni sér betur ættflokkaerjur í Afganistan. En þangað fór hún fyrr á árinu í fylgd lífvarða úr sérsveit lögreglunnar í þeim tilgangi en sagði við heimkomuna að þessi mál væru flóknari en svo að ein ferð dygði til að koma sér inn í þau.
![]() |
57 milljarða króna halli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 19:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Vestmanneyingar greiði tjónið
Laugardagur, 23. ágúst 2008
![]() |
ÍBV menn fá undarlegt bréf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
KR kaupir allt kvikt á fæti
Mánudagur, 28. júlí 2008
Miðað við stöðu Akranes í Landsbankadeildinni þyrftu þeir á öllu sínu að halda. Nú er einn þeirra besti maður, sonur fyrrum þjálfara, Bjarni Guðjónsson genginn til liðs við KR. Stundum finnst manni litlu félögin vera þjálfunarbúðir og útungunarstöðvar fyrir peningamaskínurnar. "Það er af sem áður var".
Hvar er ungmennafélagsandinn?
![]() |
Bjarni genginn í raðir KR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Grindvíkinar falla ekki
Mánudagur, 21. júlí 2008
![]() |
Ramsay tryggði Grindavík sigur gegn KR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Skoðanakönnun um Landsbankadeildina
Föstudagur, 11. júlí 2008
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 11:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Nýr hestur í miðri á.
Þriðjudagur, 8. júlí 2008
Gunnari Guðmundssyni þjálfara HK var sagt upp í dag, þar sem árangur liðsins er undir væntingum, þrátt fyrir mjög góðan árangur hans undanfarin ár. Sem knattspyrnuáhugamaður fullyrði ég að Gunnar er ekki versti þjálfari Landsbankadeildar karla, árangurinn er ekki til að hrópa húrra fyrir núna í byrjun en á það ber að líta að HK er ekki heldur stjörnum prýtt lið eins og sum sem eru lítið eitt ofar. En hvort sem þetta er sanngjarnt eða ekki þá orkar alltaf tvímælis að skipta um hest á sundreið í straumharðri á þótt hrossið beri tímabundið af leið undan þungum straumnum. Vonandi farnast báðum vel.
Gunnar Guðmundsson á góðum degi
![]() |
Gunnari sagt upp sem þjálfara HK |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 15:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Stelpurnar okkar"
Laugardagur, 21. júní 2008
Það var sannarlega gaman að fylgjast með landsleik íslenska kvennaliðsins í knattspyrnu etja kapp við slóvenskar stöllur sínar. Í húfi var réttur til umspils um að komast á sjálft Evrópumótið. Kvennaliðið hefur aldrei verið betra og áhugi fyrir kvennaknattspyrnunni er í stöðugri sókn enda var mætingin með besta móti. Það var rífandi stemning í blíðskaparveðri í dalnum og stelpurnar höfðu greinilega gaman af þessu og voru einum gæðaflokki betri en þær slóvensku. Þær voru allar frábærar í dag en að öllum ólöstuðum vil ég hæla Katrínu Jónsdóttur fyrirliða og Margréti Láru, sem skoraði þrennu og fór af velli þegar 33 mínútur voru eftir. Mér sýndist hún verða fyrir einhverju hnjaski og vona að það sé ekki alvarlegt.
Stelpurnar eiga það skilið að þjóðin standi með þeim.
![]() |
Ísland vann stórsigur á Slóveníu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |