Færsluflokkur: Evrópumál

Forsetinn kemur þjóðinni til bjargar

Forseti Íslands segir í samtali við Bloomberg að þjóðin eigi að eiga síðasta orðið um kföfugerð Hollendinga og Breta vegna hinna föllnu banka.

Guði sé lof fyrir að íslenska þjóðin skuli eiga forseta sem ver hana fyrir ofríki stjórnvalda.


mbl.is Lokaorðið hjá kjósendum segir forseti Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Græðgi Evrópusambandsins

Það er alveg merkilegt að Evrópusambandið skuli ætlast til að Íslendingar fóðri makrílinn a seiðum í íslenskri lögsögu ókeypis.  Ef Evrópusambandið þykist eiga makrílinn ættu það að koma í veg fyrir lausagöngu makrílsins hér.
mbl.is Buðu 3,1% af makrílkvóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Icesave á eða úr ís?

Hvað hefur reynslan kennt okkur um Icesave?

 

1. Samningsstaða Íslands hefur batnað eftir því sem málið er lengur saltað.

2. Ekkert er að marka orð Steingríms J. Sigfússonar um hvort það sé á eða úr ís. 

3. Þjóðin treystir ekki handleiðslu ríkisstjórnarinnar í málinu.


mbl.is Nýtt Icesave-tilboð í undirbúningi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grínisti reynir að vera alvarlegur

"Besti flokkurinn" hafði ekkert málefni.

Nærtækast er að leita til samstarfsflokksins sem vill brenna allar brýr aðrar en til Evrópusambandsins.


mbl.is Jón Gnarr gagnrýnir Kínverja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flottasti forsetinn: "Hverskonar klúbbur er þetta eiginlega?"

Máttvana Samfylking hefur reynt að draga taum Evrópusambandsins en má sín lítils gegn forseta lýðveldisins.   " Heill forseta vorum og fósturjörð"
mbl.is Hvers konar klúbbur er þetta?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland má ekki borga. Ææó!

Íslenska ríkið myndi brjóta lög með því að greiða fyrir skuldir einkabanka.

 Þetta er álit norsks prófessors í Evrópurétti. 

Þetta eru slæmar fréttir fyrir þá Evróputrúarmenn, sem haldnir eru þeirri þráhyggju að ekkert sé betra en að fá að greiða Æsseif. 


mbl.is Segir Ísland ekki mega borga fyrir Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Bjarnason kominn með upp í kok

Laxafræðingurinn Össur Skarphéðinsson sagði ekki múkk þegar Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB lýsti því yfir að Íslendingar gætu ekki gert sér neinar vonir um að fá varanlega undanþágu frá sjávarútvegsstefnu ESB. Þetta þýðir á mannamáli að baráttan nánast alla síðustu öld er til einskis ef landið gengi í Evrópubandalagið. 

Það er gott hjá Jóni Bjarnasyni að stöðva þessa vitleysu strax.


mbl.is Jón vill hætta viðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hreyfingin starfar í almannaþágu

Þingmenn Hreyfingarinnar hafa sýnt það með verkum sínum að þeir starfa í almannaþágu. Þetta kom greinilega fram þegar þau skipuðu Finnboga Vikar í nefnd um endurskoðun fiskveiða. Núna stendur Hreyfingin vaktina um orkuauðlindir þjóðarinnar, ásamt villiköttunum  í VG.

Takk fyrir það.

 


mbl.is Íhugar að kæra málið til ESA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja inn um hundalúguna en í þágu hverra?

Í ellefu hundruð ára sögu Íslandsbyggðar hefur okkur farnast best þegar við höfum ráðið okkar málum sjálf. Lýðveldistíminn er stuttur og vissulega höfum við gert afdrifarík mistök. Í stað þess að gefast upp og kasta frá okkur ábyrgðinni ættum við að taka okkur saman í andlitinu, draga lærdóm af mistökunum og bregðast við þeim eins og menn.

"Lengi getur vont versnað" Já ótrúlegt en satt:

Jafn afleitt og kvótakerfið er hér á Íslandi, færum við fyrst úr öskunni í eldinn með því að hér yrði innleitt Brusselfiskveiðikerfið. Og þá myndi fáráðlingahátturinn ná nýjum hæðum ef þjóðin afhendi fiskimiðin, lífsbjörgina, til Evrópusambandsins og þeir fáu húskarlar sem hér strituðu fyrir mat, þyrftu að halda uppi heilu stóði af hámenntuðum íslenskum möppudýrum sem nytu lífsins í Brussel þar sem menn sópa göturnar fyrir 300.000.

mbl.is Víglínur skýrast gagnvart ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur hefur sterkar þjóðir með sér

En íslenska þjóðin styður hann ekki í því að ganga í Evrópusambandið og enn síður að ganga að afarkostum Breta til þess. Bretar vita val af þráhyggju Samfylkingarinnar og spila á hana.
mbl.is Össur: Höfum sterkar þjóðir með okkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband