Tökum lensið!
Sunnudagur, 30. ágúst 2009
Vaxtarsproti vísinda, tækniframfara og hagvaxtar er í Austur - Asíu.
Íslendingar eiga stórkostlega möguleika með því að klára fríverslunarsamninga við Kína og Kóreu. Það eru óþjótandi markaðir fyrir fisk, líka fyrir makríl sem Evrópusambandið vill ekki leyfa okkur að veiða.
Þegar skipstjórnarmenn nota hastæða strauma og vindátt heitir það að "nýta lensið" eða einfaldlega að "taka lensið". Við eigum að nýta lensið og góðan byr til að sigla þöndum seglum beitivind út úr kreppunni.
Hin leiðin er náfaðmur ASG sem má lesa um hér: http://skulablogg.blog.is/blog/skulablogg/entry/939816/
Íslendingar standa á krossgögum, valið stendur á milli þess að taka lensið eða vera skuldug upp fyrir haus undir handarjaðri ASG.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 10:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Gyðinahatursparanoja?
Sunnudagur, 23. ágúst 2009
![]() |
Segir Norðmenn hata gyðinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
Gustar af Árna Johnsen
Sunnudagur, 23. ágúst 2009
![]() |
Dregur úr vindi í kvöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sigmundur fer mikinn í Æsseif. Æsifengin myndbönd
Laugardagur, 22. ágúst 2009
Hérna er umræðan óstytt: http: http://www.althingi.is/altext/hlusta.php?raeda=rad20090820T225551&horfa=1
![]() |
Funda um Icesave um helgina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 23.8.2009 kl. 01:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nýja Ísland, hvenær kemur þú?
Þriðjudagur, 18. ágúst 2009
Kvótinn, bankarnir gefnir, kúlulán, eigur hersins afhentar útvöldum.
Það mun taka langan tíma að hreinsa til eftir Sjallana segja menn.
Svo er spurningin hver eigi að gera það? Er það liðið sem vill afhenda Evrópusambandinu allt laust og fast? Er það liðið sem sér þann eina kost að skuldsetja börn okkar og barnabörn, gera þau að Ísþrælum, "til að við fáum mannorðið aftur"? Eða eigum við kannski að treysta þeim sem nú þykjast vera hneykslaðir en studdu alltaf spillinguna hvenær sem þeir áttu þess kost? Hvað er til ráða? Spyr sá sem ekki veit.
![]() |
Gamli Landsbankinn afskrifar skuldir Magnúsar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 5.9.2009 kl. 09:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Samfylkingin spurð: Á að þvinga Ísland inn í Evrópusambandið?
Miðvikudagur, 12. ágúst 2009

Það var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sem krafðist þess að Ísland tæki lán hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Gott ef það var ekki eitt skilyrða fyrir áframhaldandi stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Af hverju var hagstæðu láni frá Rússum hafnað? Nú er myndin að skýrast og því miður ber allt að sama brunni: Af hverju hefur gríðarlega hagkvæmur fríverslunarsamningur við Kína verið settur á ís? Af hverju liggur Samfylkingunni svo á að samþykkja uppgjafaskilmála við Breta sem munu færa komandi kynslóðum ánauð og fátækt? Og að lokum. Af hverju skilar Samfylkingin og frambjóðendur hennar ekki "styrkjum" frá þeim sem báru ábyrgð á Icesave?
![]() |
Íslendingar vildu ekki lán frá Rússum" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ögmundur hafði betur í rimmunni við Steingrím Mosdal
Miðvikudagur, 12. ágúst 2009

![]() |
Fjölmenni á félagsfundi VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 02:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ógeðsdrykkurinn Æsseif inniheldur ekki harðfisk, hákarl, slátur og sviðakjamma
Þriðjudagur, 11. ágúst 2009
Æsseif, eins og hann lítur út í glasinu, er óheilsusamlegur ógeðsdrykkur og það ætti ekki að neyða neinn mann til að innbyrða hann og allra síst heila þjóð. Dr. Gauti B. Eggertsson (bróðir Dags B Eggertssonar) telur algerlega nauðsynlegt að þjóðin kyngi drykknum og varar við því að stjórnin falli verði það ekki gert.
"Um hvað yrði nýja ríkisstjórnin? Icesave, jú það er væntanlega málið að fella þann samning? Og svo yrði líklega fyrsta verk hinnar nýju ríkisstjórnar að draga til baka umsókn í ESB? Væri það óneitanlega táknrænt um einangrun landsins. Kannski rétt að segja sig úr nato líka og sameinuðu þjóðunum? Taka bjart í sumarhúsum á þetta?
Fara að snúa sér aftur að því að lifa á harðfiski, hákarli, slátri og sviðakjömmum?"
Er verið að lofa þjóðinni því að hún losni við harðfisk, hákarl slátur og sviðakjamma með því að kyngja ógeðsdrykknum í einum gúlsopa?
Ásmundi bónda mæltist vel í Kastljósi í kvöld þegar hann sagðist vilja sjá atkvæðagreiðsluna fara 63:0 "Þetta er ekki flokkspólitískt mál og þjóðin hefur alls ekki efni á að skiptast í fylkingar núna" sagði bóndinn.
![]() |
Financial Times fjallar um Icesave-deiluna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 12:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Lausn ríkisstjórnarinnar: Kosið um Æsseif?
Mánudagur, 10. ágúst 2009
Íslendingar hafa fengið að kjósa um staðsetningu flugvalla, opnumn áfengisútsölustaða, sameiningu sveitafélaga og hundahald. En af einhverjum ástæðum finnst stjórnmáamönnum ekki tilefni til að leyfa almenningi að kjósa um Æsseif þó sami almenningur sé nógu góður til að borga.
Rökstuðningurinn fyrir Æsseif er sá að íslensk yfirvöld haf slegið slöku við eftirlitsskyldu sína og því verði íslenskur almenningur að borga.
Gott og vel en hvaða réttlæti er í því að þessi sömu yfirvöld og slógu slöku við ætli að fresta vandanum fram yfir þann tíma sem þau eru við völd og umbreyta Æsseif í erfðasynd fyrir unga og ófædda Íslendinga svo þeir megi sligast út lífið ef þeir flytja ekki af landi brott?
Nú eru uppi raddir um að kjósa um Æsseif og það gæti bjargað ríkisstjórninni.
![]() |
Efast um alvöru þingmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Leppstjórnin bannar Íslendingum að bjarga sér.
Sunnudagur, 9. ágúst 2009
Þó Íslendingar hafi ekki afsalað sér forræði yfir fiskimiðunum til ESB er umboðsstjórnin svo þjökuð af minnimáttarkennd gagnvert lánadrotnum okkar ESB, AGS og IMF að hún er byrjuð að stjórna eins og hún telur að ESB muni gera ef þeir taka formlega við valdataumunum.. Sjómenn eru á hröðum flótta um allan sjó undan makríl sem ekki má veiða.
Lesið hér stórmerkilega grein eftir Jón Kristjánsson fiskifræðing
![]() |
Of mikið gert úr gjaldeyrisvarasjóði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)