Villifé eða villimennska við Tálkna?

Oli%203%20kindur%20fjallstong Dýraverndunarráð ásamt Bændasamtökunum hafa af  lýst yfir stuðningi við að villiféið við Tálkna verði hundelt og því fargað.  Af mannúðarástæðum má villifé á Tálkna ekki ganga frjálst eins og það hefur gert í hálfa öld eða lengur. Í staðinn er það hrakið fyrir björg -- af mannúðarástæðum, væntanlega, eða handsamað sturlað af hræðslu áður en það er drepið. Ef útiganga sauðfjár er óforsvaranleg, hvað þá með útigöngu hreindýra, hafarna, hrafna eða sela? Er ekki rétt að taka öll villidýr á landinu í hús ef útigangan er svona ómannúðleg? Eða skjóta þau að öðrum kosti? Eða getur verið að þetta sé misskilin mannúð, mistúlkuð og slitin úr samhengi? Væri of mikið að kalla þetta villimennsku?
mbl.is Styðja smölun villifjár í Tálkna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Eigum við ekki að taka alla sem misst hafa framan af útlim og og farga þeim af mannúðarástæðum ?

Níels A. Ársælsson., 7.12.2009 kl. 09:32

2 identicon

Bla, Bla, Bla, hvað eru þessir snillingar hjá "dýraverndunarráði" og bændasamtökunum að tuða. Er takandi mark á þeim? ekki sögðu þessir sömu aðilar orð um það þegar fé var í svelti á bæ einum í Álftafirði. Er ímyndin hjá þessum aðilum kannski löskuð eftir það og því ráð að reyna að klóra yfir vanhæfni þeirra með þessu.

Það er líka eðlilegt að manni langi ekki í lambakjöt, ef bændasamtökin segja ekkert um illa meðferð á fénu fyrir austan. Er kannski víðar pottur brotin í þessum málum og verið að passa að það komist ekki upp?

dýravinur (IP-tala skráð) 7.12.2009 kl. 09:48

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ætli það sé ekki fremur villimennska en hitt, að geta ekki séð féð í Tálknanum í friði. Að minnsta kosti er það lágkúra á býsna háu stigi.

Jóhannes Ragnarsson, 7.12.2009 kl. 09:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband