Gegnheill stjórnmálamaður sem þorir!

6555ad8e47b1a9100c0e442977ba8d38_300x225Lilja Mósesdóttir hefur sýnt það með störfum sínum og málflutningi að hún er ábyrgur stjórnmálamaður sem þorir að taka storminn í fangið þegar á þess er þörf.  Það  er meiri mannsbragur á  að takast á við tímabundna erfiðleika en að ógna sjálfstæði þjóðarinnar með því að leggja þyngri klyfjar á börn okkar og barnabörn en þau fá risið undir.

Ég veit að þjóðin styður Lilju í þessu máli. 


mbl.is Getur ekki samþykkt Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

spurjum að leikslokum

Jón Snæbjörnsson, 1.11.2009 kl. 14:39

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Skuldavandinn er ekkert grín:

Skuldir ríkisins, skv. eigin skýrslum þess, ku vera 1,6 VLF.

Skv. því sem Gylfi Magnússon sagði, í vikunni sem leið, eru skuldir fyrirtækja: 1,8 VLF. Þar af, eru skuldir fyrirtækisins, Actavis, 0,7 VLF.

Ef við berum þetta saman við heildarskuldastöðu þjóðfélagsins, skv. Seðlabanka Íslands:

 14.343 ma.kr.  / 1.427 VÞF = 10 VLF

En ef eignir eru dregnar frá, er nettó talan sem þá fæst:

5.954 ma.kr. / 1.427 VLF = 4,17 VLF

4,17 - (1,6 + 1,8) =  0,77 VLF

Með öðrum orðum, skuldir annarra úti í þjóðfélaginu, en ríkisins og fyrirtækja, eru umtalsvert hærri en skuldin af Icesave, sem hleypur á cirka 0,5 VLF.

---------------------------------------

Punkturinn með Icesave, er ekki endilega að það eitt og sér sé óviðráðanlegt, heldur verður að skoða heildardæmið, þ.e. að við skuldum þegar þvílíkar ógnarupphæðir, að Icesave ofan á allt það, getur verið síðasti líkkistunaglinn.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 1.11.2009 kl. 15:49

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Siggi minn

Sammála Einari um að við skuldum nú þegar þvílíkar ógnarupphæðir.

Við getum ekkert verið að leika Miskunnsama Samverjann og borgað Icesave skuldir Björgólfsfeðga.

Guð veri með þér

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 1.11.2009 kl. 17:36

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála þér Sigurður.  Vildi að það væru fleiri alþingismenn með bein í nefinu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.11.2009 kl. 11:34

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ég er líka sammmála Einari.

Skyldu VG félagar Lilju hafa greind til að treysta hagstjórnarmati hennar?

Júlíus Björnsson, 3.11.2009 kl. 22:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband