Íslendingar hafa um tvennt að velja: Tekjuleið eða skuldaleið

burdenÍslendingar hafa um tvennt að velja, þ.e. að nýta auðlindir sínar eða gerast bónbjargarmenn Breta með því að skuldsetja sig á þeirra forsendum.

Við getum stóraukið jafnvel margfaldað tekjur okkar af hafinu t.d. með handfæraveiðum og veiða makríl sem Evrópusambandið telur sig eiga þó hann syndi og nærist í íslenskri lögsögu, við getum nýtt sjávarspendýr sem innbyrða 20 falt það magn sem við veiðum og slegið tvær flugur í einu höggi. Haft tekjur af afurðunum og nálgst jafnvæi í hafinu sem eru stærri hagsmunir. 

Í báðum tilvikum  verðum við að taka á okkur lífskjaraskerðingu en sá er munurinn að sé fyrri kosturinn, tekjuleiðin, valin er vandinn tímabundinn auk þess sem við og afkomendur okkar geta staðið upprétt skuldlaus til framtíðar.

 

 


mbl.is Sameinast um að fordæma hvalveiðar Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hver ætlar að kaupa af okkur afurðirnar þegar við búin að skella í lás á alþjóðasamfélagið?  Bretar?  Þeir reyndar stærsti einstaki kaupandinn af íslenskum sjávarafurðum í dag - en við þurfum náttúrulega ekki á þeim að halda eða hvað?  Og hvernig gengur okkur að selja þann hval sem við þegar búin að veiða?  Er mikil eftirspurn eftir hvalkjöti í heiminum þessa dagana? 

AS (IP-tala skráð) 6.10.2009 kl. 10:21

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Góð spurning AS

 Evrópusambandið kaupir engar hvalaurðir af Íslendingum. Íslendingum er í lófa lagið að auka viðskipti við Asíu en þar er gríðarleg eftirspurn eftir fiski. Evrópusambandsaðild Íslands myndi hins vegar tafarlaust loka fyrir sölu á sjávarafurðum til Asíu vegna tollamúra (40-60%) á fiskafurðir frá Evrópusambandinu.

Sigurður Þórðarson, 6.10.2009 kl. 10:32

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

P.s.

 Þessar síðustu spurningar þínar eru dálítið skrítnar, því þú spyrð eins og langt að kominn túristi.   Þeir sem veiða hval telja það hagkvæmt og selja afurðir sínar til Japan. Hvalkjöt er hollur og góður matur sem flestir Íslendingar kunna að meta. Ferðamenn sem koma til Íslands eru líka sólgnir í hvalkjöt.

Sigurður Þórðarson, 6.10.2009 kl. 10:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband