Verjum Ísland

Fáum dylst að  framundan er brimsjór í efnahagslegu tilliti, mistök núna geta orðið komandi kynslóðum dýrkeypt. Þó sagnfræðin skipti máli þá er það framtíðin og þær ákvarðanir sem teknar eru núna og á næstu vikum sem geta skipt framtíð barna okkar og þjóðarinnar öllu máli. Þessu stöndum við frammi fyrir sama í hvaða flokki veið erum eða vorum. Þó Geir og Solla hafi ekki verið jarðtengd og Árni Matt hafi skrifað eitthvað óábyrgt rugl á minnisblað leysir það ekki núverandi og tilvonandi stjórnendur frá því að hugsa sjálfstætt og af ábyrgð.  Það getur til dæmis ekki réttlætt að ráðamenn undirriti skuldbindingar sem allir sjá að þjóðin getur aldrei risið undir.  Þjóðin hefur einfaldlega ekki efni á að leiðtogar hennar hugsi þetta út frá flokkshagsmunum. Núna verða ALLIR að leggja sitt besta fram.

Verjum Ísland!


mbl.is Hætt við öll útboð í vegagerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Sigurður - sem oftar, og fyrri !

Ekki; treysta þeim Jóhönnu og Steingrími, til meiri ábyrgðarkenndar, en þau Geir og Ingibjörg Sólrún sýndu; svo eftirminnilega.

Til; að verja Ísland, þurfum við, að koma af höndum okkar, eða gera óskaðlega, nokkra Fimmtu ''herdeilda'' manna, hverja er að finna í B - D - S og V listum, auk embættismanna kerfisins morknaða - Samtaka atvinnulífsins og ASÍ eigandann; Gylfa Arnbjörnsson, svo engum sé nú gleymt.

Hér verður; að koma á Byltingarnefnd þjóðernissinnaðrar Alþýðu, svo frekara tjóni verði afstýrt.

Rétt; að Íslendingar fari nú að bretta upp ermar - og steypa þessu illa maðkaða þjóðskipulagi, hvert stórskemmt hefir tilveru- og búsetu möguleikana, á landi okkar.

Með beztu kveðjum; sem oftar og fyrri /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 21.6.2009 kl. 15:50

2 Smámynd: Jón Rúnar Ipsen

Hafðu engar áhyggjur af því að verja þetta land hér verður engin til að verja það svikin þjóð er að undirbúa sig undir að fara ekki síst í kjölfar þessara gjörða vegagerðaiðnar

Jón Rúnar Ipsen, 21.6.2009 kl. 17:43

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæll Óskar við verðum að koma okkur úpp úr skotgröfum. Jón Rúnar niðurskurður Vegagerðarinnar eru smámunir og skiptimynt miðað við Icesave.  Þessi niðurskurður er rétt byrjunin á því sem koma skal.

Sigurður Þórðarson, 21.6.2009 kl. 18:14

4 Smámynd: Jón Rúnar Ipsen

En hvað mun það kosta í fjárútlátum fyrir ríkið starfsmenn verktaka verða atvinnulausir og fara á bætur hvað mun það kosta ?????

Jón Rúnar Ipsen, 22.6.2009 kl. 10:16

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæll Jón Rúnar,

það á eftir að lækka  atvinnuleysisbætur mjög verulega.

Niðurskurðurinn er ekki hafinn ennþá.

Sigurður Þórðarson, 22.6.2009 kl. 12:39

6 Smámynd: Jón Rúnar Ipsen

Af það verður get þá er ég viss um að stjórinn er fallinn en það kemur mér ekki á óvert því þetta er stjórn svika og ofbeldis gegn þeim sem minna meiga sín

Jón Rúnar Ipsen, 22.6.2009 kl. 12:44

7 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Jón, ef við skrifum undir Icesave þa´skiptir engu máli hvaða stjórn verður. Það verða engir peningar til neins nema að borga vexti af erlendum lánum.

Með hvaða peningum ætlar þú þá að borga atvinnuleysisbætur?

Sigurður Þórðarson, 22.6.2009 kl. 13:01

8 Smámynd: Jón Rúnar Ipsen

Ertu ekki að misskilja hlutina eða ert þú bara fastur í einum hlut ??

Ef hætt verður að borga atvinnuleysisbætur hvaðan á fólk sem ekki hefur vinna þá að fá pening til að lifa ?? Annars er það eigilega komið að þér að útskýra hvaða þú færð þær uppslýngar um að hætt verði að greiða Atvinnuleysisbætur eða ert þú bara að etja eitthvað fram til að segja eitthvað ?????? Sigurður Ég bíð eftir svari hvaðan eiga þúsundir fólks að fá pening tl aðlifa ef hætt verður að greiða atvinnuleysisbætur .

Jón Rúnar Ipsen, 22.6.2009 kl. 13:12

9 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Kæri Jón,

ég er ekki í pólitík.  Ég prenta ekki heldur peninga.  En ef engir peningar eru til nú þá eru engir peningar til. 

Sigurður Þórðarson, 22.6.2009 kl. 13:22

10 Smámynd: Jón Rúnar Ipsen

Sem sagt þú reynir bara að koma neikvæðni af stað þú hefur ekkert fyrir þér mætti halda að þú sért í sjálfstæðisflokk talandu út og suður án þess að hafa nokkur fyrir þér

Jón Rúnar Ipsen, 22.6.2009 kl. 14:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband