Bjölluundirleikur

Sigumundur lét einleik Ástu Ragnheiðar forseta alþingis á bjöllu trufla sig og slá sig út af laginu meðan hann var í ræðustól.  Sigmundur verður að æfa þetta atriði betur því svona bjölluundirleikur getur í raun dregið fram helstu áherslur í máli ræðumanns.
mbl.is Óásættanleg framkoma forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sigurjón

Þú sem fyrrverandi alþingismaður þá veistu hvernig málin eru á þessum vinnustað ?

Það er með ólíkindum að heyra,  og þurfa að sjá,  sandkassaleikinn sem er á þessum vinnustað !

Það er alltaf ,,vinnustaðarfífl"  á hverjum vinnustað !

Formaður framsóknarflokksins er búinn að stimpla sig vel inn í það starf !

JR (IP-tala skráð) 16.6.2009 kl. 21:49

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ha,  fyrrv. alþingismaður?

Sigurður Þórðarson, 16.6.2009 kl. 22:09

3 identicon

Sigmundu Davíð skilur ekki að það er Sf sem var í stjórn er í stjórn og verður í stjórn

Sveinbjörn (IP-tala skráð) 16.6.2009 kl. 22:42

4 identicon

Fyrir gefðu Siggi minn !

Var það ekki vitlaus bróðir sem fór á þing ! 

JR (IP-tala skráð) 16.6.2009 kl. 22:58

5 Smámynd: Jens Guð

  Mér hefur lengi þótt formenn Framsóknarflokksins kjánalegir.  Enginn toppar þó Halldór Ásgrímsson.  En undir bjölluleiknum á alþingi í dag komst Sigmundur Davíð með tærnar þar sem Halldór hefur hælana.

  Sem gamall og vinsæll plötusnúður ætti Ásta Ragnheiður að geta boðið upp á miklu flottari bjölluleik.  Að vísu var hún hætt að plötusnúðast þegar viðbættur trommutaktur (frá trommuheila) varð kúnst sem plötusnúðar þurftu að hafa vald á.  En samt.  Hún þarf að koma betri takti á bjölluspil sitt.  Sigmundur Davíð þarf líka að átta sig á að sandkassinn í leikskólanum er ekki alveg eins og sandkassinn á alþingi.  Eða hvað?

Jens Guð, 17.6.2009 kl. 00:35

6 Smámynd: Helga Þórðardóttir

Siggi gæti örugglega lífgað upp á Alþingi eins og mér fannst Sigmundur Davíð satt best að segja gera í dag

Helga Þórðardóttir, 17.6.2009 kl. 01:22

7 Smámynd: Þorri Almennings Forni Loftski

Siggi á þing, þá fyrst yrði gaman.

Þorri Almennings Forni Loftski, 17.6.2009 kl. 04:37

8 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ég er sammála þeim Helgu og þorra almennings að Siggi eigi fullt erindi inn á Alþingi. En ég er ekki sammála J.R. að Sigurjón sé vitlaus!

Árni Gunnarsson, 17.6.2009 kl. 15:23

9 identicon

Ásta Ragnheiður er örugglega með mjög mikið stífelsi

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 17.6.2009 kl. 16:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband