Hækkað tryggingargjald = hækkað atvinnuleysi.

Nú er farið að kvisast út hverjar ráðstafanir ríkisstjórnarinnar verða. Það fer eins og marga grunaði. 20123826það á að skattleggja kreppuna. Tryggingagjald verður stórhækkað til að mæta aukinni þörf atvinnuleysistryggingasjóðs og ábyrgðasjóðs launa. Tryggingargjald er gjald sem fyrirtæki borga fyrir að hafa fólk í vinnu en það er afraksturinn er jafnframt notaður til að greiða atvinnuleysisbætur. Illa stæð fyrirtæki eiga því engra annara kosta völ en að segja upp fólki. Fer þetta því að minna á bóndann sem skar skottið af hungruðum hundi sínum til að gefa honum að éta. 

Ráð ríkisstjórnarinnar er: Að skattleggja kreppuna í burtu!

 


mbl.is Skattahækkanir úr ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes H. Laxdal

Já,  og með því fara fleiri á atvinnuleysisbætur og því þarf að hækka tryggingargjaldið ennþá meira til að geta borgað atvinnuleysisbætur .. 

 Djöfuls vítahringur sem þessi ríkisstjórn er að koma af stað.

Jóhannes H. Laxdal, 16.6.2009 kl. 13:59

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk fyrir innlitið Jóhannes. Við höfumst ólíkt að.  Aðrar þjóðir sem lenda í atvinnuleysi styrkja fyrirtæki til að ráða fólk en hér eru þau skattlögð og því meir sem þau ráða fleiri. 

Sigurður Þórðarson, 16.6.2009 kl. 14:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband