Ágústi ýtt út í kuldann

Ingibjörg Sólrún er greinilega að herða tökin. Ágúst Ólafur naut ekki stuðnings hennar og hefur í nú verið ýtt út í kuldann eftir að hafa að hennar mati talað ógætilega meðan hún var á skurðarborðinu. En þá má spyrja: Til hvers eru varaformenn?  Átti öll Samfylkingin að fara í veikindafrí á sama tíma og c_agust_olafurformaðurinn leitaði sér lækninga.  Á flokkurinn að leggjast í bælið ef formaðurinn fær hita?

Ágúst Ólafur mun skv. meðfylgjandi frétt hætta þingmennsku að loknum kosningum í vor. 


mbl.is Ágúst Ólafur hættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vigfús Davíðsson

Vertu rólegur Siggi minn . Hún Ingibjörg Sólrún vill hafa  ykkur með í ríkistjórninni . Ég vona svo sanna lega að Frjálslyndiflokkurinn verði með , og Guðjón Arnar verði Sjávarútvegsráðherra .

Vigfús Davíðsson, 27.1.2009 kl. 10:01

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ágúst Ólafur er bara svona kjánaprik sem á ekkert erindi inn á Alþingi. Þessi boð hefur hann fengið frá fleirum en Ingibjörgu og mamma hans hefur sagt honum að hætta þessari þrjósku. En á margan hátt er þessi góðlegi piltur fluggreindur og á örugglega auðvelt með allt bóknám.

Árni Gunnarsson, 27.1.2009 kl. 10:21

3 Smámynd: Jóhann Hallgrímsson

Ég myndi hætta líka ef ég væri næst valdamesti maður í flokknum en farið með mig einsog þriðja flokks þegna, það er alveg ljóst að honum var aldrei ælaður nokkur frami í flokknum og hann var alla tíð í kuldanum, hann er bara of kurteis til þess að segja það.

Jóhann Hallgrímsson, 27.1.2009 kl. 10:24

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Gaman að sjá þig Vigfús, vonandi getum við haft áhrif til góðs, hver svo sem verður ráðherra. Ég held með sjávarbyggðunum, kannski fæ ég einhvertíma að fara í róður með þér. Sæll Árni ég kom aldrei auga á hvað Ágúst gerði svona ofboðslega rangt. Jóhann, líklega er það rétt hjá þér.

Sigurður Þórðarson, 27.1.2009 kl. 10:36

5 Smámynd: Elfur Logadóttir

æ hvað þetta er óttarlega hjákátlegt, sérstaklega þegar litið er til þeirra málefnalegu ástæðna sem Ágúst Ólafur hefur sjálfur tilgreint sem ástæður (mögulega tímabundins) brotthvarfs síns.

Það er öllum mönnum (og konum :)) hollt að auka við menntun sína og viðsýni með dvöl erlendis um skemmri eða lengri tíma.

Elfur Logadóttir, 27.1.2009 kl. 11:32

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég hjó eftir þessu Elfur en hann á líka ung börn. Vonandi gengur honum allt í haginn.

Sigurður Þórðarson, 27.1.2009 kl. 12:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband