Hryðjuverk í skjóli hryðjuverkalaga

Gordon Brown beitti fyrir sig hryðjuverkalögum þegar hann réðist inn í Kaupþing í Bretlandi, sem var breskur banki og hafði alltaf staðið við allar sínar skuldbindingar enda stóð bankinn langbest allra íslenskra banka og hafði fengið risa fyrirgreiðslu hjá íslenska og sænska seðlabankanum og margir Eina sýnilega ástæðan var sú að bankinn var í eigu íslenskra aðila.  Það réttlætir ekki þessa aðgerð þó Landsbankinn sem er í eigu íslenskra aðila hafi misstigið sig. Brown hótar að brjótast inn í fleiri íslensk fyrirtæki sem væri ólöglegt og siðlaust.  Nú er Brown sigri hrósandi enda fór Kaupþing á hliðina við þessa aðgerð og getur þar af leiðandi ekki staðið við skuldbindingar sínar. Það hlakkar í Brown sem segir Íslendinga vera gjaldþrota.  Ríkisstjórnin verður að fara með málið fyrir dómstóla og kyrrsetja verðmæti úr bankagjaldþrotunum fyrir væntanlegum skaðabótum.

GordonBrownNewBoy

 

 

Þetta smámenni rústaði stærsta banka á Íslandi og svipti meirihluta Íslendinga stórum hluta af lífeyrissparnaði sínum.


mbl.is „Sparkað í liggjandi (Ís)land"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband