Ögmundur stendur með Íslandi, Samfylkingin með Evrópusambandinu

%C3%96gmundurÞað hefur lengi blasað við að Samfylkingin er meira en tilbúin til að fórna öllum hagsmunum þjóðarinnar til að koma Íslandi inn í Evrópusambandið. Samfylkingin lítur á Icesave sem tvíeggjað sverð annarsvegar sem hindrun inn í sambandið en hinsvegar tækifæri, því þessi mikla skuldsetning gæti dregið úr mótstöðukrafti þjóðarinnar, einkum þegar gera þarf upp skuldir með auðlindum. Eða halda menn að það sé tilviljun að systurflokkar Samfylkingarinnar á Norðurlöndunum skuli hafa tekið upp mjög eindregna afstöðu með Bretum og Hollendingum? 

Ögmundur Jónasson hefur tekið skýra afstöðu með íslenskum almenningi í þessum hráskinnaleik. 


mbl.is Gegn hagsmunum Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. febrúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband