Bretarnir sakna Svavars. Dularfullir fyrirvarar við fyrirvara. Allt "leyndó"!

Hollendingar og Bretar sakna Svavars því hann var svo lipur, samþykkti allt og bauð uppá kampavín. „Í þessum samtölum hafa komið fram af hálfu Breta og Hollendinga, "óformlega og í trúnaði", hugmyndir um hvernig þeir hugsa sér að þeir geti staðið að því að samþykkja fyrirvarana. Það er verið að kynna það fyrir stjórnvöldum hér,“ segir Indriði.  Svavar bar samninganefndarmönnum Hollendinga og Breta vel söguna engu hafi verið hótað þvert á móti  sagði hann að viðræðurnar hefðu verið mjög vinsamlegar enda bauð hann uppá kampavín. Steingrímur J. Sigfússon gaf aftur á móti í skyn að Íslendingum hafi verið hótað. Ef það hefur verið gert var það gert óformlega og í trúnaði.

Alþingismenn áttu ekki að fá að sjá samninginn! Í hverra þágu er verið að fara á bak við íslenska þjóð sem þó er ætlað að borga reikninginn?


mbl.is Hugmyndir Breta og Hollendinga kynntar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. september 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband