Jóhanna og Eva Joly í hár saman!

Nú hefur Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra Samfylkingarinnar sigað aðstoðarmanni sínum á vinsælustu c_bloggmyndir_einn_a_munninnkonu á Íslandi Evu Joly. Jóhanna lætur aðstoðarmann sinn senda henni tóninn með þessum orðum:: "Dettur Evu í hug að þessi grein auki traust á Íslandi erlendis ? "  Síðan fylgir þessi hótun: "Held hún ætti að halda sig við ráðgjöf við sérstaka saksóknarann og láta aðra um efnahagsmálin.“

Fjölmargir samfylkingarmenn líta ekki á sig endilega sem Íslendinga heldur Evrópumenn og því eru sumir þeirra undrandi og jafnvel sárir Evu fyrir að taka eindregið málstað Íslendinga og gagnrýna um leið Evrópusambandið..  

Ráðherrar  hafa enga burði til að kljást við Evu Joly en senda aðstoðarmann á foraðið.

 


mbl.is Hrannar sendir Joly tóninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamla og Nýja Kaupþing sammála um að leyna ósómanum

Top-SecretÞað gengur ekki hnífurinn á milli Gamla og Nýja Kaupþings í ákefðinni að koma í veg fyrir umfjöllun um vinnubrögð Gamla Kaupþings. Það er hvorki sanngjarnt né rétt að  bankinn  beiti fyrir sig bankaleynd því upplýsingar úr lánabókum eru komnar fram. Það er umfjöllunin og hugsanleg krufning upplýsinganna sem bankanum er illa við.

 Það má víst enginn sjá sporin.


mbl.is Kaupþing fékk lögbann á RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. ágúst 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband