Færsluflokkur: Bækur
Væntanlegur formaður Samfylkingarinnar. forgangsraðar.
Föstudagur, 7. ágúst 2009
Steingrímur J. Sigfússon er klókur valdastjórnmálamaður. Hann sér í hendi sinni að Jóhanna er orðin öldruð og lúin og áttar sig ekki til fullnustu á flóknum verkefnum. Enginn kandídat er augljós valkostur og Samfylkingin því í raun höfuðlaus her. Þessu áttar Steingrímur sig vel á og spilar þessa skák óaðfinnanlega. Hann hefur nálgast Samfylkinguna í stóriðjumálum, Evrópumálum, Æsseif og kemur í hverju málinu á fætur öðru fram sem talsmaður ríkistjórnarinnar og Samfylkingarinnar.
Steingrímur veit hvað hann þarf að gera til að ná markmiði sínu: Hann verður að vinna að Evrópusambandsaðild og samþykkja Æsseif. Með þessu er hagsmunum komandi kynslóða fórnað og þær hnepptar í skuldafjötra en verkefnum skal forgangsraða.
![]() |
Vill ekki stríð við aðrar þjóðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (58)
Samviskulaus barnanauðgari náðist
Föstudagur, 7. ágúst 2009
Það var frábært framtak hjá þýsku lögreglunni að svæla barnaníðinginn "Christof" úr greninu með því að birta af honum myndir og raddsýni þannig að hann sá sér ekki annað fært en að gefa sig fram. Þetta þqxyzw beitti kornunga drengi skefjalausu ofbeldi, sem er miklu þyngra en tárum taki. Ég vona að yfirvöld hér heima og erlendis læri af þessu og sleppi ekki aftur svona þqxyzw út á götu "af mannúðarástæðum".
Ath! Meðfylgjandi myndband er ekki af Christof enda eru þau ekki birtingarhæf.
![]() |
Barnaníðingur gaf sig fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 10:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sjómenn þvingaðir til að henda makríl í stórum stíl
Fimmtudagur, 6. ágúst 2009

![]() |
Síldveiðiskip umkringd makríl um alla lögsögu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 14:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Einar Þveræingur endurborinn
Miðvikudagur, 5. ágúst 2009
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Jóhanna og Eva Joly í hár saman!
Sunnudagur, 2. ágúst 2009
Nú hefur Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra Samfylkingarinnar sigað aðstoðarmanni sínum á vinsælustu konu á Íslandi Evu Joly. Jóhanna lætur aðstoðarmann sinn senda henni tóninn með þessum orðum:: "Dettur Evu í hug að þessi grein auki traust á Íslandi erlendis ? " Síðan fylgir þessi hótun: "Held hún ætti að halda sig við ráðgjöf við sérstaka saksóknarann og láta aðra um efnahagsmálin.
Fjölmargir samfylkingarmenn líta ekki á sig endilega sem Íslendinga heldur Evrópumenn og því eru sumir þeirra undrandi og jafnvel sárir Evu fyrir að taka eindregið málstað Íslendinga og gagnrýna um leið Evrópusambandið..
Ráðherrar hafa enga burði til að kljást við Evu Joly en senda aðstoðarmann á foraðið.
![]() |
Hrannar sendir Joly tóninn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 13:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Gamla og Nýja Kaupþing sammála um að leyna ósómanum
Sunnudagur, 2. ágúst 2009
Það gengur ekki hnífurinn á milli Gamla og Nýja Kaupþings í ákefðinni að koma í veg fyrir umfjöllun um vinnubrögð Gamla Kaupþings. Það er hvorki sanngjarnt né rétt að bankinn beiti fyrir sig bankaleynd því upplýsingar úr lánabókum eru komnar fram. Það er umfjöllunin og hugsanleg krufning upplýsinganna sem bankanum er illa við.
Það má víst enginn sjá sporin.
![]() |
Kaupþing fékk lögbann á RÚV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 10:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
AGS frestar mjög gott mál
Fimmtudagur, 30. júlí 2009
Hvernig væri að menn hættu að eyða öllum sínum tíma í að taka lán en færu þess í stað að einbeita sér að því að þéna og skapa verðmæti? Maður hálf sammast sín fyrir íslenska ráðherra sem ferðast um heiminn vítt og breitt til að sníkja lán og bjóðast jafnvel til að samþykkja að afsala komandi kynslóðum griðum ótímabundið og óafturkallanlega (Icesave) einungis ef hægt sé að fá meiri lán. Maður hefur heyrt óhuggulegar sögur um heróínneytendur en ráherrastóðið og sendinefndir þeirra slá öll met.
Á sama tíma er Breiðafjörðurinn fullur af makríl, sem étur loðnu og sandsíli og ekki má veiða af því að einhver vill koma sér í mjúkinn hjá Evrópusambandinu en klapp á bakið er létt í vasa. Í Breiðafirðinum er líka óvenjumikið af skötusel sem þarf að fleyja af því að enginn er með kvóta. Að friða þorsk og skötusel í sama firðinum er jafn gáfulegt og að friða hænur og mink í sama búri.
Skuldugasta þjóð í heimi þarf ekki meiri lán hún að borga l án og því er neitun AGS það besta sem gat komið fyrir Ísland í þessari stöðu. Fyrsta skrefið er að viðurkenna vandamálið.
![]() |
Afgreiðslu AGS frestað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Örlaganornirnar og icesavesamninganefndin
Fimmtudagur, 30. júlí 2009
Sífellt koma fram fleiri ábendingar um vankunnáttu og axarsköft hjá Icesave samninganefndinni. Nú hefur komið í ljós að rótina má rekja til misskilnings nefndarmanna á fornri þjóðtrú.
Urður er myndgervingur fortíðarinnar, Verðandi nútímans, og Skuld framtíðarinnar.
Skálarræðan:
Það er lykillinn að hamingju og dyggð að elska örlög sín, nauðugur viljugur.
![]() |
Lánið stoppar á Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Opið bréf til allsherjargoða
Laugardagur, 18. júlí 2009
Ágæti allsherjargoði.
Mörgum er ofarlega í huga hvenær landvættirnar muni grípa í taumana og blanda sér í stjórnmálabaráttuna með afgerandi hætti?
Við ásatrúarmenn og raunar allir Íslendingar aðhyllumst frelsi andans, samt er það æði oft svo að maður leiðir ekki hugann að forræðinu fyrr en það bitnar á manni sjálfum.
Hingað hafa jafnan borist stefnur og straumar utan úr hinum stóra heimi, nú síðast Evrópuhugsjónin, allt hefur þetta gengið yfir eins og flensurnar.
Forræðishyggjumönnum til yndisauka en gömlum sjómanni, vini mínum til ama eru verjur einungis leyfðar í einni EB-stærð og hefur hann því þurft að útvega sér þessa munaðarvöru frá Ameríku, þar sem enginn amast við því að þessi vöðvi, sem ekki má nefna, sé ekki af staðlaðri stærð. Við brosum kannski að þessum vandræðum vinar míns sem ber harm sinn í hljóði.
Nái óskir samforræðishyggjumanna fram að ganga verður Kjartani sægreifa innan tíðar gert að hætta að selja vinsælasta réttinn sinn hvalkjöt.
Hvalveiðimennirnir, segja sambræðingssinnar og yppta öxlum: Geta þeir ekki fundið sér eitthvað annað? Það skapast ný mörg störf þegar fjölgar um rúman helming í ráðuneytunum.
Kannski rekur það mig til að hafa samkennd með þessu fólki að ættingjar mínir hafa komið saman svo lengi sem elstu menn muna og borðað ólöglegar afurðir þ.e. sel, þetta köllum við selskap sem við hugsum ávalt til með mikilli tilhlökkun. Nú skilst mér að þetta sé þyrnir í augum Evrópuhugsjónamanna sem myndu heldur vilja sjá okkur Skógarnesinga borða evrópskt svínakjöt.
Allt eru þetta þó smámunir í samanburði við þá fyrirætlan Evrópuhugsjónamanna að gera okkur frjálsborna Íslendinga ásamt óbornum niðjum okkar að Ísþrælum, "sem afsala sér griðum óafturkallanlega og ótímabundið" (Icesave samn.), til þess eins að kaupa aðgöngumiða í "Kæfubelginn Brussel".
Því heiti ég á þig ágæti allsherjargoðai, að þú beitir tafarlaust áhrifum þínum við landvættirnar þannig að þær bægi þessari ógn, Evrópuhugsjóninni, frá landinu áður en hún veldur hér skaða.
![]() |
Frestun Icesave slæmur kostur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt 19.7.2009 kl. 08:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
Menntaðasti evrópufræðingur Íslands hefur talað
Fimmtudagur, 16. júlí 2009
Dr. Elvira Mendez, er án efa langmenntaðasti sérfræðingur á Íslandi í Evrópurétti.Það er sorglega lýsandi fyrir vanhæfni ríkisstjórnarinnar í þessu Icesave deilu að þessari eldkláru konu skyldi ekki hafa veið boðið að leiða samninganefndina eða að minnsta kosti eiga sæti í henni. Og til að bíta höfuðið af skömminni bar sendiherra fenginn til að leiða nefndina, rétt eins og hæfniskröfurnar fælust í því hver væri vanastur í að skála fyrir væntanlegu samkomulagi!
Þegar Steingrímur var spurður af hverju hann hefði ekki reynt að fá DR. Elviru, sagði hann að það væru takmörk fyrir því hvað hægt væri að eyða í sérfræðinga. "Það væri enginn skortur á sérfræðingum sem vildu gefa ráð gegn háu gjaldi." Elvíra svaraði þessu á fundinum í Iðnó og sagðist myndi hafa gert þetta ókeypis ef eftir því hefði verið leitað. Málsvörn ríkisstjórnarinnar fólst í því að kaupa eftirá lögfræðiálit hjá lögmanni sem er hvorki sérfróður í þjóðar- né Evrópurétti.
Dr. Elvíra er hógvær en henni en henni misbýður framkoma Evrópusambandsins gagnvart Íslandi.
![]() |
Misbýður umgjörðin um Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 05:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)