Færsluflokkur: Bækur
Álfheiður sendir Ögmundi tóninn
Fimmtudagur, 1. október 2009
Álfheiður uppskar ráðherraembætti fyrir foringjahollustu sína við Steingrím og tók það fram á sínum fyrsta degi að hún væri ekki verkkvíðin. Með þessu orðum hjó hún í sama knérunn og foringinn sem ásakaði Ögmund um að gefast upp fyrir aðsteðjandi vanda í heilbrigðiskerfinu.
Allir sem til þekkja vita að þetta er fullkomlega ómaklegt. Ögmundur sagði af sér vegna þess að landstjórinn hefur sett þrýsting á Steingrím og Jóhönnu sem þau bogna undan, ekki síst vegna EB þráhyggju Samfylkingarinnar. Hann gerði þetta fyrir þingræðið vegna þess að hann er mótfallinn því að komandi kynslóðir verði gerðar að Ísþrælum með því að leggja á þær Ísklafa.
![]() |
Álfheiður verður ráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Besti ráðherrann hættur
Miðvikudagur, 30. september 2009
![]() |
Ögmundur segir af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Jóhanna fúl út í landstjórann.
Þriðjudagur, 29. september 2009

![]() |
Jóhanna: Þolinmæðin á þrotum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 11:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Getgátur og dagdraumar
Föstudagur, 25. september 2009
Nú er skeggrætt um hvort fram hafi komið mögulegar getgátur um miklar olíulindir á Drekasvæðinu. Ekki kemur fram í frétt Morgunblaðsins um þetta mál kemur ekki fram hver hafi haft uppi þessar getgátur eða af hverju hann eða hún hefur gert það.
Það er samt misjafnt hvað svona getgátum er sýndur mikill áhugi. Til samanburðar þegar getgátur voru uppi um að mikil olía væri á Færeyska landgrunninu sóttu öll stærstu olíufélögin um leyfi til rannsókna. Eitt skúffufyrirtæki sótti um leyfi til rannsókna á Drekasvæðinu og er hætt við.
Kosturinn við að enginn leggi í rannsóknir er ótvírætt sá að á meðan getum við ornað okkur við getgátur og dagdrauma.
![]() |
Getgátur um gríðarlegar olíulindir á Drekasvæðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ríkisstjórnin svíkur loforð um innköllun kvótans
Miðvikudagur, 23. september 2009
Ríkisstjórnarflokkarnir lofuðu báðir fyrir síðustu kosningar að þeir myndu standa að innköllun kvótans. Þetta átti að gerast í hænufetum einungis 5% á ári en en brautin skyldi mörkuð tafarlaust og örugglega. Nú hefur komið í ljós að þetta voru ósannindi og einungis sett fram til að ljúga út atkvæði fyrir síðustu kosningar enda var Jón Bjarnason flóttalegur í Kastljósviðtali kvöldsins. http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4472024/2009/09/23/0/ Jón er áreiðanlega vænsti maður og það er því dapurlegt hlutskipti fyrir hann að vera gerður að talsmanni þessara svika.
![]() |
Ræða um greiðsluvanda heimila |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Bretarnir sakna Svavars. Dularfullir fyrirvarar við fyrirvara. Allt "leyndó"!
Fimmtudagur, 17. september 2009
Hollendingar og Bretar sakna Svavars því hann var svo lipur, samþykkti allt og bauð uppá kampavín. Í þessum samtölum hafa komið fram af hálfu Breta og Hollendinga, "óformlega og í trúnaði", hugmyndir um hvernig þeir hugsa sér að þeir geti staðið að því að samþykkja fyrirvarana. Það er verið að kynna það fyrir stjórnvöldum hér, segir Indriði. Svavar bar samninganefndarmönnum Hollendinga og Breta vel söguna engu hafi verið hótað þvert á móti sagði hann að viðræðurnar hefðu verið mjög vinsamlegar enda bauð hann uppá kampavín. Steingrímur J. Sigfússon gaf aftur á móti í skyn að Íslendingum hafi verið hótað. Ef það hefur verið gert var það gert óformlega og í trúnaði.
Alþingismenn áttu ekki að fá að sjá samninginn! Í hverra þágu er verið að fara á bak við íslenska þjóð sem þó er ætlað að borga reikninginn?
![]() |
Hugmyndir Breta og Hollendinga kynntar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þurfa að stofna skúffufyrirtæki í ESB
Miðvikudagur, 16. september 2009
![]() |
Stærsti álframleiðandi Kína spáir í Þeistareyki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 06:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Gengdarlaus sóun á opinberu fé
Þriðjudagur, 15. september 2009
![]() |
Fleiri andvígir en hlynntir ESB-aðild |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um hvað er deilt í Borgarahreyfingunni?
Mánudagur, 14. september 2009
Framboð Borgarahreyfingarinnar kom fram við óvenjulegar aðstæður:
Stjórnmálaöfl voru flest ekki bara vanhæf heldur spillt. Þrír stjórnmálaflokkar voru ýmist meðvirkir eða beinlínis ábyrgir fyrir hruninu og ljóst var að þeir myndu gera allt til að hindra greiðan framgang hreinsunarstarfsins sem gæti hitt þá sjálfa fyrir. Nauðsyn bar því til að fram kæmi stjórnmálaafl með hreina samvisku.
Góðu heilli varð talsverð uppstokkun á þinginu, þó hún hefði mátt verða meiri. Margir nýir þingmenn hafa staðið sig vel og meðal þeirra fremstu eru þrír þingmenn sem kosnir voru af lista Borgarahreyfingarinnar.
Ég ætla ekki að eyða kröftum mínum í að setja mig inn í þessar deilur, auðvitað hafa menn rétt til að gagnrýna kjörna fulltrúa. Betra væri að slík gagnrýni sé málefnaleg og sanngjörn en á því hefur verið nokkur brestur. En standi stjórn stjórnmálahreyfingar í útistöðum við kjörna fulltrúa sína á opinberum vettvangi er það ekki bara venjulegur óvinafagnaður, heldur heggur sá er hlífa skyldi. Þingmenn eru kjörnir af þjóðinni en ekki þröngum hópi áhugamanna, það er ef til vill kjarni þessa máls.
![]() |
Harma deilur í Borgarahreyfingunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Krónan hnyklar vöðvana og hristir af sér kreppuna
Mánudagur, 7. september 2009
![]() |
Hagvöxtur að nýju á fyrri hluta næsta árs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 13:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)