Pottabyltingin étur börn barna sinna

Það er aumlegt hlutskipti þeirra umskiptinga sem potta- og pönnubyltingin fleytti á þing og nú ganga erinda gömlu nýlenduveldanna með því samþykka AGS/ICESAVE/ESB pakkann. Reikningurinn verður sendur ungum og ófæddum Íslendingum. Afborgunarskilmálarnir eru valfrjálsir:  Fátækt eða landflótti.
mbl.is Icesave afgreitt út úr nefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

EU byggir á minnst þremur stjórnunarstigum. Miðstýring þjóðríkja. Undirmiðstýring þjóða.  Sjálfsábyrgð héraða.  Region: Ísland færi ekki 2 stjórnarstig fyrir ekki neitt.

Kreppa er framtíðin í EU m.t.t. USA og Kína Bandalagsins. Enginn skortur á mannauð í EU.

Eina fólkið sem skortur er á er það sem hefur bæði líkama og heila til að vinna.

Valið er fátækt eyjaskeggjans.

Júlíus Björnsson, 17.11.2009 kl. 03:37

2 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Siggi minn

Já þetta er ömurleg uppskera potta og pönnubyltingarinnar sem við tókum þátt í. Slæmt var það en hefur ekki batnað. Það er allt svo rotið. Gengur ekkert að moka flórinn á Alþingi.

Það þarf að virkja fólk til starfa sem tók ekki þátt í þessari viðbjóðslegu spillingu sem við fáum að vita um meir og meir frá bankahruninu.

Sumir afsaka Samfylkinguna að þau hafi verið svo stutt í ríkisstjórn en að mínu mati var Ingibjörg sólrún alltof lengi í ríkisstjórn. Búin að semja í Brussel um flýtimeðferð inní ESB gegn því að við myndum greiða Icesave og svo öll eyðslan hennar sem Utanríkisráðherra til að komast í ráð Sameinuðu þjóðanna. Kannski ætlaði hún að gulltryggja sig þar. Fá að starfa þar fyrir íslenska þjóð?

Mér finnst íslensk þjóð þurfi að láta meira í sér heyra.

Alþingismenn þurfa að fá meira aðhald.

Guð veri með þér

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 17.11.2009 kl. 16:32

3 identicon

Sæll, Sigurður.  Margir íslendingar eru að hugsa sinn gang þessa dagana, sveitastjórnarkosningar munu eflaust skerpa línurnar og fróðlegt verður að fylgjast með kosningaþátttöku.  Af þeim samtökum sem eru í gangi bind ég mestar vonir við Heimssýn, félag evrópuandstæðinga, vona fólk þar myndi fjöldahreyfingu sem gagn yrði að.   Fjórflokkurinn er alla veganna ekki málið.

Kveðja, LÁ

lydur arnason (IP-tala skráð) 19.11.2009 kl. 02:04

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Skarplega athugað hjá þér Lýður

Sigurður Þórðarson, 19.11.2009 kl. 09:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband