Ásmundi Daðasyni óskað heilla.

%C3%81smundur_Einar_Da%C3%B0asonHeimssýn, félagsskapur sem vill setja hagsmuni Íslands í öndvegi hefur aldrei haft brýnna erindi við íslenska þjóð en einmitt núna þegar óþjóðholl og spillt öfl hafa látið greipar sópa. Á þjóðþinginu og jafnvel í ríkisstjórn er fólk sem hefur þá framtíðarsýn að afsala sjálfstæðinu, auðlindunum og gera niðja sína að skuldsettum indíánum í eigin landi. 

  Ég komst því miður ekki á aðalfund Heimssýnar þar sem ég hafði löngu ákveðið að vera á 60 ára afmælishátíð Náttúrulækningafélags Reykjavíkur sem haldið var við fjölmenni í Hveragerði í dag. Þar eins og allstaðar þar sem fólk kemur saman eru framtíðarmál þjóðarinnar rædd. Og þegar það spurðist að Ásmundur hefði verið kjörinn formaður Heimsýnar var gerður að því góður rómur af þeim sem til hans þekktu.

Ragnar Arnalds hefur skilað frábæru starfi sem formaður Heimsýnar og skilar nú keflinu í hendur ungs hugsjónamanns.

Ég óska Heimssýn til hamingju og Ásmundi Einari Daðasyni velfarnaði og gæfu.


mbl.is Ásmundur Einar nýr formaður Heimssýnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Sigurður, æfinlega !

Ég vona; fyrir hönd ykkar Heimssýnar fólks, að þið hafið ráðið, í stöðu nýs leiðara, eftir þeim væntingum, sem duga mættu, til enn öflugra fylgis, við þjóðfrelsið, mögulega.

Hygg; að þið Gupðmundur Jónas, verðið eindrægir, fyrir dagrenningu, komandi, Sigurður minn.

Með beztu kveðjum; sem jafnan, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 16.11.2009 kl. 02:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband