Drög að uppgjafaskilmálum

pray_boySvo sem við mátti búast eru íslensk stjórnvöld tilbúin til að falla frá fyrirvörum Alþingis og fallast á uppgjafaskilmála við Breta. Erlendir hagsmunaaðilar treysta nú á AGS að það aðstoði við að koma auðlindum landsins í þeirra eigu, þegar Ísland ræður ekki lengur við afborganirnar.  Baráttan um Ísland er hafin.

Morgunblaðið telur sig hafa heimildir fyrir því að ríkisstjórnarforystan sé bjartsýn á að koma þessu í gegn um þingið.  Vonandi hefur ríkisstjórnin eða Morgunblaðið rangt fyrir sér í þeim efnum. Ég treysti á þjóðhollt  fólk í VG. Ögmundur hefur ekki enn orðið viðskila við samvisku sína og verður það vart úr þessu. Nú er kominn tími til að rifja upp bænirnar sem amma kenndi mér í æsku.

 


mbl.is Icesave-fyrirvörum breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já við verðum að leggja traust okkar á Ögmund

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 18.10.2009 kl. 02:16

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Við skulum bara treysta Steingrími. Hann er það skásta sem við höfum.  Guð hjálpaði nefnilega Íslandi og leiddi Steingrím til valda eins og Geir Haarde óskaði

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 18.10.2009 kl. 09:02

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Á hvaða sterka stöffi er Jóhannes eiginlega?  Miðað við þetta verður ekki annað séð en að Guð hafi yfirgefið Ísland og skilið það eftir í höndunum á LANDRÁÐAFÓLKINU Heilagri Jóhönnu og Steingrími Joð.

Jóhann Elíasson, 18.10.2009 kl. 09:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband