Bretarnir sakna Svavars. Dularfullir fyrirvarar við fyrirvara. Allt "leyndó"!

Hollendingar og Bretar sakna Svavars því hann var svo lipur, samþykkti allt og bauð uppá kampavín. „Í þessum samtölum hafa komið fram af hálfu Breta og Hollendinga, "óformlega og í trúnaði", hugmyndir um hvernig þeir hugsa sér að þeir geti staðið að því að samþykkja fyrirvarana. Það er verið að kynna það fyrir stjórnvöldum hér,“ segir Indriði.  Svavar bar samninganefndarmönnum Hollendinga og Breta vel söguna engu hafi verið hótað þvert á móti  sagði hann að viðræðurnar hefðu verið mjög vinsamlegar enda bauð hann uppá kampavín. Steingrímur J. Sigfússon gaf aftur á móti í skyn að Íslendingum hafi verið hótað. Ef það hefur verið gert var það gert óformlega og í trúnaði.

Alþingismenn áttu ekki að fá að sjá samninginn! Í hverra þágu er verið að fara á bak við íslenska þjóð sem þó er ætlað að borga reikninginn?


mbl.is Hugmyndir Breta og Hollendinga kynntar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Áhugavert verður að sjá, hvort Bretar og Hollendingar, hafi uppdiktað einhverja stórsnjalla túlkun eða orðalagsbreytingu.

Það eru fáir hálari, sem álar, en Bretar, þegar kemur að túlkunum og ísmeygilegu orðalagi.

Ap sjálfsögðu, tekur aðstoðarmaður fjármálaráðherra, undir allt - enda hefur sá maður, frá byrjun hagað sér eins og hann væri í hlutverki samningamanna Breta eða Hollendinga.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 17.9.2009 kl. 16:42

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Nýlega var refsilöggjöf á Indlandi hert við að selja börn sín í skuldaánauð.

Hafa aldraðir stjórnm´lamenn sem kosnir eru til fjögurra ára leyfi til að skuldsetja börn fædd og ófædd?

Sigurður Þórðarson, 17.9.2009 kl. 19:21

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Vottorð EU liggur fyrir 2024 erum við ennþá ekki búin að rétta úr kútnum og EU með allt eignarhald á Íslenskum eigendum sem geta unnið sér til ánægju yfir eignaréttindum. Miðstýringarvald á öllum eigendum úr öðrum Meðlima-Ríkjum.

Jarðfræðingar, kennarar, flugfreyjur, bréfberar eru ágæt fólk í EU en fá ekki að breyta menningararfleiðinni.  

Grænt er grasið? 

Júlíus Björnsson, 18.9.2009 kl. 02:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband