Kjósendur í Suðurkjördæmi segi af sér

Óvenju hátt hlutfall fyrrum þingmanna Suðurkjördæmis og forvera þess forvera þess Suðurlands  og Reykjaneskjördæma hafa hlotið langa refsidóma og tekið út betrunarvist fyrir margvísleg auðgunarbrot allt frá smygli smáþjófnuðum og upp í skjalafals og mútuþægni. Hæst bar þó að kjósendur Suðurkjördæmis endurkusu á þing manninn sem bar ábyrgð á fjármálaeftirlitinu sjálfum bankamálaráðherranum Björgvini Sigurðssyni.

Þess vegna eiga kjósendur í Suðurkjördæmi að íhuga alvarlega afsögn.


mbl.is Segir af sér vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æ, í guðanna bænum

Var hann yfirmaður fjármálaraeftirlitsins þegar Icesave varð til?

Alveg ótrúlegt hvernig hver óvitinn á fætur öðrum virðist bara hafa blokkað stjórnarsetu D og B og þær "framfarir" sem þeir stóðu fyrir í bankakerfinu komu okkur svo í koll eins og slæma bernskuminningu

Svo má nú ekki gleyma því að þessir sömu kjósendur kusu yfir sig dæmdan glæpamann sem sveik og stal frá skattborgurum á meðan hann gengdi starfi alþingismanns

Ert þú einn af þeim?

Cicero (IP-tala skráð) 6.7.2009 kl. 09:42

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Cicero, þú hefur kannski ekki tekið eftir því að ég skrifaði um fyrrum þingmenn Suðurkjördæmis, sem hlotið hefðu refsidóma og setið inni fyrir tiltekin hegningalagabrot. Reyndar voru þeir allir í Sjálfstæðisflokknum ef ég man rétt svo þér þarf nú ekki að sárna það fyrir hönd ríkisstjórnarflokkana.

Við tókum upp Icesave af því að við vorum skyldaðir til þess af Evrópusambandinu en eftirlit hefði mátt vera betra á vakt Björgvins en það er annað mál. 

Sigurður Þórðarson, 6.7.2009 kl. 11:12

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Cicero?, hann var yfirmaður Fjármáleftirlytsins þegar Icesave-reikningunum var hleypt af stokkunum.  Ef þú ferð inná vef Seðlabankanns á netinu sérðu að erlendar skuldir þjóðarinnar jukust MEST þegar Samfylkingin var HÆKJA Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn landsins.  Það er nú ekki lengra síðan en þetta að Icesave varð til.

Jóhann Elíasson, 6.7.2009 kl. 12:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband