Stefnum Bretum og endurheimtum mannorðið

Þeir Íslendingar sem eiga einhver samskipti við útlönd, hvort sem það er vegna ferðalaga búsetu eða viðskipti hafa með einum eða öðrum hætti mætt andstreymi. Rétt eins og seðlabankastjóri upplifir almenningur í útlöndum útrásarvíkingana og  bankamennina sem "óreiðumenn". Það er sama hvort maður opnar fyrir Sky, BBC eða gluggar í eitthvað blað alltBritishEmpire er á eina bókina lært: Íslendingar eru dólgar sem bresk stjórnvöld reyna að hemja. Á þessu forsendum beittu bresk stjórnvöld hryðjuveralögum og knésettu stærsta fyrirtæki Íslendinga.  Íslendingar eiga bara einn kost í stöðunni þeir verða að stefna Bretum. Breski fjármálaráðherrann afsakar hegðun sína með því að  vitna í tveggja manna tal sitt við íslenskan starfsbróður sinn. Árni segir Darling afflytja samtalið og getur vitnað í upptöku því  til stuðnings. Ég trúi okkar manni 

Stefnum Bretum, með því fá Kaupþingsmenn bætur og við Íslendingar endurheimtum mannorðið. 


mbl.is Vilja ekki íslensku sinfóníuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heidi Strand

Við endurheimtum ekki mannorðið með dómi.
Sjálfsagt að fara í mál við Breta, en mannorðsmissir voru ekki vegna Kaupþing heldur Landsbankinn og kjafturinn á hann sem engin þori að reka.

Heidi Strand, 14.10.2008 kl. 21:29

2 identicon

Já herna............Allt Bretum að kenna.......... zzzzzzzzzzzzzzzzzz

Fair play (IP-tala skráð) 14.10.2008 kl. 22:35

3 Smámynd: Halla Rut

Við munum sjá og sigra.

Sammála þér kæri vinur sem oftar.

Halla Rut , 15.10.2008 kl. 00:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband