Bretar búnir að valda öllu því tjóni sem þeir geta.

Bretar eru búnir að eyðileggja stærsta fyrirtæki á Íslandi og valda öllu samfélaginu ómældu tjóni og munu tæplega geta bætt um betur. Nauðsynlegt er að ræða við öll ríki sem hlut eiga að máli en láta Breta mæta afgangi enda geta þeir ekki valdið meira tjóni úr því sem komið er. Hér eftir treysti ég varlega meðlimum Breska Verkamannaflokksins til að  fara með íslenska hagsmuni.
mbl.is Þokumst nær samkomulagi við Breta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Sigurður minn, sem oftar, ágæti drengur !

Jú; þakka þér, þessa greinargerð, líka sem hinar fyrri. Auðvitað; eru fjárlög og stjórn, í algjöru alkuli, sem stendur, vitaskuld.

Hvet þig; sem aðra rýnendur, til þess að sjá nýja færzlu mína, hvar ég kem inn á óræktar hátt Þorsteins Pálssonar Fréttablaðs ritstjóra, meðal annars, að nokkru.

Með kærum kveðjum, úr Árnesþingi suður /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 11.10.2008 kl. 16:45

2 Smámynd: Bjarni Harðarson

sammála... eðlilegt skref núna væri að endurskoða veru okkar í nató!

Bjarni Harðarson, 11.10.2008 kl. 18:58

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Miðað við þær fréttir að samningar um tryggingar íslenska ríkisins á innistæðum breskra þegna í þessu hrunda hofi séu komnar í farveg sýnist mér nú að öll havtvísi sé óvarleg. Mér sýnist flest benda til þess að íslensk stjórnvöld hafi litla umframorku til að bregðast við hótunum handrukkara þessa dagana.

Árni Gunnarsson, 11.10.2008 kl. 23:06

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sælir og takk fyrir athugasemdirnar Óskar, Bjarni og Árni. Að því  gefnu að treysta megi réttarkerfinu tel ég verulegar líkur á að Kaupþing geti fengið verulegar bætur.

Sigurður Þórðarson, 11.10.2008 kl. 23:49

5 Smámynd: Árni Gunnarsson

Sammála því að sjálfsagt er að kanna skaðabótakröfur. En brýnasta verkið er að finna farsæla lausn á kröfu Bretanna. Síðan þarf að fara vandlega yfir alla þætti árásarinnar á Kaupþing banka. Vonandi eigum við stöðu til málsóknar en hinu verður ekki á móti mælt að ummæli þairra Davíðs og Geirs gátu orðið efni til þess klaufalega skilnings sem Georg Brown lagði í þau. Hvatvísi Davíðs Oddssonar er auðlesin úr mörgum hans viðbrögðum undangengin dægur. Og vegna þess að breski forsætisráðherrann sýnist vera á ámóta dplómatisku þroskastigi fór sem fór.

Árni Gunnarsson, 12.10.2008 kl. 10:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband