Framkvæmdir hófust í Helguvík í morgun!!

Þau stórtíðindi gerðust í morgun að framkvæmdir hófust í Helguvík, strax eftir að forstjóri Norðuráls fékk afhent byggingarleyfi. (Sjá frétt) Þessar framkvæmdir virðast vera gerðar í fullri andstöðu við hluta ríkisstjórnarinnar ef marka má orð Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra. Núverandi áætlun gerir ráð fyrir að fyrsta áfanga verði lokihelguvikð árið 2010 og verði þá framleidd150.000. tonn af ál. Næsta víst er að þetta mun stöðva lækkunarferli krónunnar. 

20070715090439998287

 

 Í Helguvík er mjög góð hafnaraðstaða

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Myndin er af álveri Norðuráls við Grundartanga.


mbl.is Framkvæmdir hafnar í Helguvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Þessar framkvæmdir virðast vera gerðar í fullri andstöðu við hluta ríkisstjórnarinnar"...  Hversu stórum hluta ríkisstjórnar?

Bjarki Gunnarsson (IP-tala skráð) 14.3.2008 kl. 09:38

2 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Úfff .... ekki líst mér þessar framkvæmdir á mínum heimaslóðum! 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 14.3.2008 kl. 09:56

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Mjög áhugaverð spurning Bjarki.  Ég hef ekki kortlagt þetta en andstaðan í ríkisstjórninni er greinilega bundin við Samfylkinguna, sem er klofin í þessu máli en andstaðan er hvað hörðust hjá Þórunni en margir aðrir minni spámenn fylgja henni ef marka má blaðaskrif undanfarið.

Sigurður Þórðarson, 14.3.2008 kl. 09:57

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæll Guðsteinn, satt segir þú. Þetta er vægast sagt umdeilanleg ákvörðun enda rúmast mengunin af þessu ásamt væntanlegu álveri á Bakka ekki innan KIOTO bókunarinnar. Betra hefði verið að nýta orkuna með minna mengandi hætti.

Sigurður Þórðarson, 14.3.2008 kl. 10:02

5 Smámynd: Örvar Þór Kristjánsson

Ríkisstjórnin stendur með þessu.  Heilbrigðisráðherra er einfaldlega í röngum flokk, hún á að vera með tuðurunum í VG, hún er á móti öllu.

Annars eru þetta magnaðar fréttir, Árni lætur verkin tala

Örvar Þór Kristjánsson, 14.3.2008 kl. 10:43

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég tek undir með Örvari að heilbrigðisráðherra er í röngum flokki, við frjálslyndir  tækjum vel á móti honum. Viðar, við eigum auðvitað að nýta orkuna til góðra og arðsamra verka  en við megum ekki vera með öll eggin í sömu álkörfunni.

Sigurður Þórðarson, 14.3.2008 kl. 10:58

7 Smámynd: Óskar Arnórsson

Nenni ekki að hafa skoðun á álverum... Það verður hvort eð er engin spurður um leyfi í alvörunni.

Tek undir þetta með Viðari helga, að mér finnst nú forgangsröð mikilvægra mála ekki eins og þau ættu að vera...

Óskar Arnórsson, 14.3.2008 kl. 11:12

8 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Frábært að ekki er hlustað á afturhaldsviðhorf Samfylkingarinnar, dragbítinn á
íslenzkt efnahagslíf. Að SJÁLFSÖGUÐU eigum við að nýta orkuna fyrir land og
þjóð, frumforsenda hagvaxtar og velferðar. Ekki lífum við á loftinu! Ekki  vaxa
peningarnir á trjánum!  Eða verðlausum bréfum sbr verðbréfahrunið  í dag!
Eða hvað ?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 14.3.2008 kl. 11:30

9 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Kannski að það sé nokkuð til í því Mannsi. Ég hef skoðun á öllu ræð engu, veit lítið en gruna margt.

Guðmundur, við erum sammála eins og oft áður.  Ég hef ekkert á móti áli en vil ekki að við séum of háðir þessari einu vörutegund. Raforku er hægt að nýta með svo margvíslegum hætti að einhæfni er ónauðsynleg.

Sigurður Þórðarson, 14.3.2008 kl. 15:23

10 Smámynd: Árni Gunnarsson

"..frumforsenda hagvaxtar og velfarnaðar? Bíðum við! Er ekki forsætisráðherra okkar í neyðarferð vestan hafs til að reyna að bakka upp trúverðugleika íslensks hagkerfis?

Er gjaldmiðill okkar ekki kominn að fótum fram og spurning hvenær við neyðumst til að leggja hann niður?

 Er ekki verið að loka sjúkradeildum og fækka í löggæslustörfum?

Vorum við ekki að heyra fréttir af því að það yrði að fækka leitarhundum Fíknó um einn, af því við höfðum ekki efni á að gefa honum að éta?

Verður ríkið ekki að skattleggja laun undir 100 þús. kr. á mánuði?

Erum við ekki nýbúin að reisa stórt og glæsilegt álver?

Og ekki er nú þessi spurningalisti tæmandi.

Árni Gunnarsson, 14.3.2008 kl. 16:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband