Kapp er best með forsjá

Bankarnir virðast sammála um að rifa seglin strax og glitnir332_landsbanki-smallKAUP-logohæga útþenslunni áður en það er um seinan.

 

 

 

 

 

 Þó hrikti í þá getum við fagnað því að bönkunum hefur að mestu gengið vel hingað til. Skynsamari menn vilja hægja á ferðinni og verja fenginn hlut. 11_afkomuspa_fyrirtaekja_stor

Það er hættulegt að ofmetnast, hver man ekki eftir því þegar íslenskir ráðherrar og jafnvel forsetinn fóru um heiminn og kynntu kvótakerfið, lénaskipulag í sjávarútvegi undir nafninu "íslenska fiskveiðistjórnarkerfið".  Þetta var svart tímabil sem flestir vildu gleyma enda eru margir nytjastofnar komnir að fótum fram og sjávarútvegurinn skuldar rúm 300% af ársveltu. Til að bæta gráu ofan á svart hefur alþjóðasamfélagið úrskurðað að kerfið feli í sér mannréttindabrot.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband