Jón Bjarnason kallar á kirkjuna

Æ fleiri "kalla á Ásatrúarfélagið". (Er ekki eitthvað bogið við þetta orðalag)  Ég hitti Hilmar Örn um daginn og sagði hann mér að félagsmenn væru eitthvað á yfir tvö þúsund. Eru þá restin af þjóðinni að "sækja að félaginu"? Erum við sem ekki erum í þjóðkirkjunni að "sækja að henni". Nei, en reglur heimila ekki að maður sé skráður í fleiri en eitt trúfélag.  Sjálfur fer ég oft í kirkju og hef sem betur fer aldrei fundið mig óvelkominn.  Er ekki eðlilegra að ákalla guði en stofnun?


mbl.is Við köllum á kirkjuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Hvor ætli sé meiri tímaskekkja, Jón eða kirkjan ?

hilmar jónsson, 13.11.2012 kl. 11:09

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála, þetta dútl með þjóðkirkju er úrelt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.11.2012 kl. 12:54

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Jón má gjarnan hrópa á kirkjuna. En ef marka má myndir var hrópandinn í eyðimörkinni með sítt hár en ekki skalla.

Sigurður Þórðarson, 13.11.2012 kl. 16:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband