Færsluflokkur: Löggæsla

Réttarkerfi misgott fyrir suma?

 Þó réttarkerfið sé gallað eins og þarna sést hef ég meiri trú á því en stjórnsýslunni. Sjálfur hef ég orðið vitni að því að Neytendastofa hafi meðvitað tekið við rangri skýrslu og látið það mál liggja árum saman og síðan fyrnast. Það ætti að skera niður fjárveitingar til opinberra eftirlitsstofnanna sem hilma yfir lögbrot og hindra framgang réttvísinnar.


mbl.is Getur hindrað framgang réttvísinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

26. greinin hefur sparað Íslendingum fúlgur fjár.

Þetta voru prófessorarnir Dr. Elvira Mendens og Stefán Már Stefánsson búin að segja. Það hefði annars verið meiri fjandinn að taka upp "collective punishment" gegn þjóð vegna aðgerða fárra. Nú ættu alþingismenn sem deila löggjafavaldinu með forsetanum að óska honum til hamingju.
mbl.is Ísland vann Icesave-málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hælisleitendur reyna ítrekað að flýja Ísland en eru oftast handteknir

Mér er óskiljanlegt hvers vegna lögreglan þarf að vera með mikinn viðbúnað til að hafa hendur í hári manna sem ítrekað hafa reynt að flýja Ísland. Þetta er mikið sport hjá nokkrum einstaklingum sem jafnvel hafa sagt í blaða og sjónvarpsviðtölum reyna aftur.  Af hverju er ríkið að reka fangabúðir? Af hverju er fólki sem þess óskar ekki leyft að fara?
mbl.is Hóta að loka höfnum fyrir skipum Eimskips
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki hægt að fá hann til að halda námskeið að Fitjum og á Kvíabryggju?

Atvinnu- og nýsköpunartækifæri liggja eins og hráviði. Hvað eru menn að hugsa?
mbl.is Adoboli í sjö ára fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neytendastofa hefnir sín.

Einhver stærstu mistök sem ég hef gert í lífinu voru þau að leita til Neytendastofu, sem úrskurðaði degi áður en frestur sem áfrýjunarnefnd neytendamála gaf stofnuninni til að svara kæru vegna óhæfilegs dráttar á málinu.  Áður hafði undirritaður spurt innanríkisráðuneytið hvernig stæði á því að lögmaður Eggerts Kristjánssonar hf hefði fengið að gefa upplogna skýrslu fyrir Neytendastofu án þess að það lögbrot hefði verið kært til lögreglu.  Af þessu tilefni spurði ég innanríkisráðuneytið skriflega um hver afstaða þess væri til slíkra lögbrota.  Ráðuneytið svaraði undirrituðum skriflega og viðurkenndi að lögbrot hefði verið framið. Það er borgaraleg skylda mín að var við þessari stofnun. 

Ég fagna því að úrskurður sé nú  kominn því þá er hægt að skjóta málinu til dómstóla.  


mbl.is Engin hætta á ruglingi á umbúðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkamaður í víngarði Drottins

Ég tók sjálfur þátt í mótmælum, leit reyndar á það sem borgaralega skyldu. Kannski hefði Geir Jón gert það líka ef hann hefði ekki verið önnum kafinn við löggæslustörf. Það var afar fróðlegt og gagnlegt að hlusta á hann ræða málin af hreinskilni í Valhöll. Geir Jón er öðlingur einn af þessum þýðu lögreglumönnum sem vinna sína skyldu en vilja lagið hafa í mannlegum samskiptum. Það er mikil eftirsjá af honum úr lögreglunni en ég vona að hans skarð verði fyllt þó mikið holrúm sé.

Fallegt lag með lögreglukórnum


mbl.is Hreyttu svívirðingum í lögregluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maðurinn barði ekki sambýliskonu sína

Ég var gabbaður til að lesa þess annars leiðinlegu frétt af því að ég hélt að hún fjallaði um krassandi hjónaerjur.  Við lestur fréttarinnar kom í ljós að um var að ræða "hjaðningarvíg" fyrrverandi pars sem líklega hefur verið í verulegri óreglu en á barn saman. Barnsins vegna vona ég að konan finni betri félagsskap en þennan óreglusama og ofbeldisfulla ræfil.
mbl.is Barði sambýliskonu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki ætti að drepa feita menn

og reyndar ekki granna heldur en því miður ríður refsigleðin ekki við einteyming.
mbl.is Biðst vægðar vegna offitu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útlendingastofnun blæs út

 „Ég vil sjá þessa stofnun að minnsta kosti 30 manna, ekki 20 manna eins og hún er í dag.“  "Þetta er einfalt reikningsdæmi, þannig að því fleiri starfsmenn sem sinna þessu, því ódýrara verður þetta fyrir ríkið " Segir Kristín Vönundardóttir forstjóri Útlendingastofnunar. 

Það eru samt ekki svo ýkja mörg ár síðan þessu var vel sinnt af einum manni í hlutastarfi. 


mbl.is „Þetta er ekki boðlegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnmálamönnum finnst gaman að vera í Klúbbum

Stjórnmálamönnum finnst gaman að skrá sig í allskyns klúbba, stofna ónauðsynleg sendiráð og fara í Öryggisráðið, Evrópusambandið og guð má vita hvað. Ein versta ráðstöfun sem þeir hafa gert var að ganga í Schengen.  Í skjóli Schengen er vændisfólk, fíkniefnaneytendur og þjófagengi send á milli landa.  Göngum úr Schengen áður en óbætanlegt tjón hlýst af.
mbl.is Vill Noreg úr Schengen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband